17.03.1921
Neðri deild: 25. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 551 í D-deild Alþingistíðinda. (3764)
87. mál, vantraust á núverandi stjórn
Atvinnumálaráðherra (P. J.):
Jeg verð að taka það fram, að mjer leiðist alt hnotabit, og reyni að losast við skammir og hnífilyrði á meðan kostur er. Jeg myndi ekki hafa tekið þátt í deilum þessum, ef ekki stæði svo á, að til mín hefir verið beint allmörgum skeytum, og þá ætlast til, að jeg tæki á móti þeim.
Jeg var ekki viðstaddur áðan, er hæstv. fjrh. (M. G.) tók til máls, svo jeg veit ekki nema hann hafi svarað einhverju af því, sem til okkar hefir verið beint beggja í senn, og jeg taki það upp að ófyrirsynju.
Hv. 1. þm. Árn. (E. E.) hafði lítið við það að athuga, sem jeg hafði áður mótmælt í ræðu hans viðvíkjandi atvinnuvegum landsins. Hann sagði aðeins, að koma þyrfti fjármálum landsins í betra horf, og dettur víst engum í hug að neita því.
Og það, sem hann mun hafa átt við, er það, að stjórnin hefði ekki komið peningamálum landsins í gott horf, eins og henni bar þó skylda til. En á öðrum stað í ræðu sinni fór hann að afsaka sjálfan sig, hvers vegna hann hefði ekki komið peningamálunum austan fjalls í betra horf, og ástæðurnar voru þær sömu eins og hjá stjórninni. Þess vegna held jeg, að ef hann vildi nú líta á málið með sanngirni, að hann myndi geta tekið afsakanir stjórnarinnar gildar jafnhliða sínum.
Annars verð jeg að segja það, að þar sem hann leiddi bankana inn í þessar umr., þá sat það mjög illa á honum sem formanni peningamálanefndarinnar. Hann hefði gert skynsamlegra í því að spara sjer þessar ásakanir allar, þangað til þau mál verða til umr. hjer í deildinni.
Sami hv. þm. (E. E.) var að brigsla þm. Ak. (M. K.) og þm. Ísaf. (J. A. J.) um fylgi sitt við stjórnina. Jeg sje ekki, að það sje brigsl á neinum, að vera hvort heldur sem er, með eða á móti stjórn, ef menn fylgja sinni sannfæringu. Því veitti jeg þessu eftirtekt, að oft hefir bólað á því, að þótt hafi vansi að fylgja stjórninni, meira að segja þeim ámælt líka, sem ekki hafa viljað lýsa andstöðu sinni gegn henni. Dæmi þessa eru ámæli þau, sem 3. þm. Reykv. (J. Þ.) hefir hlotið. En jeg met þetta til drengskapar og tel það einurðarvott hjá þessum hv. þm. (J. Þ.), að vera ekki í andskotaflokki stjórnarinnar, úr því þeir hafa eigi trú á því, að hægt sje, að svo stöddu, að mynda betri stjórn. Það hefir, frá byrjun okkar innlendu landsstjórnar, bólað á ragleik hjá sumum hv. þm. í því að fylgja stjórninni og kannast við það, en jeg held, að þetta lýsi þroskaleysi í hinu pólitíska lífi hjer hjá oss.
Hv. 2. þm. Reykv. (J. B.) talaði um það, að stjórnin væri ósamræm. Jeg veit nú ekki glögt, hvað hann meinar með þessu, nema ef vera skyldi það, að þegar stjórnin myndaðist, hafi mismunandi stoðir runnið undir hana. Við tveir, forsætisráðherra og jeg, erum nú heimastjórnarmenn, og nutum því sameiginlega styrks þess flokks. Undir fjármálaráðherra munu aftur á móti fleiri stoðir hafa runnið. En þetta sannar ekkert ósamræmi, og stjórnin hefir ekkert tilefni gefið til þess, að heimilt sje að telja hana ósamræma. Auðvitað er það, að þar sem stjórnin er skipuð fleiri en einum manni, geta ekki allir ráðherrarnir altaf verið á sama máli. Hver ráðherra hefir sitt starfssvið og fylgir þeim málum, sem sannfæringin býður. En við höfum leitað samvinnu hver við annan, og erum yfirleitt ekki ósammála í neinu verulegu.
Hv. sami þm. (J. B.) mintist á tvö frv., sem jeg lagði fram, einkasölufrv. fyrir kornvörur og frv. um seðlaútgáfurjettinn, og fanst þau mjög fara í bága hvort við annað. Jeg fæ nú, satt að segja, ekki sjeð, hvað er samræmilegt með þeim málum. Jeg lagði kornvörufrv.. fram í Ed. og tók ljóst fram afstöðu stjórnarinnar í því máli. Jeg get mjer þess nú til, að hv. þm. (J. B.) sje fylgjandi stefnu þessa frv. En haldi hann, að hjer sje verið að hneigjast að ríkisverslun alment, þá er svo ekki. Stjórnin er ekki að marka neina slíka stefnu; hún bar fram frv. aðeins til þess að reyna að koma fram bjargráðamáli, og var þar öll sammála. Það má vel vera, að í sumum atriðum fari skoðanir okkar, hv. 2. þm. Reykv. (J. B.) og mín, á þjóðfjelagsmálum, ekki mjög á mis, en jeg er þó ekki neinn sócíalisti, heldur samvinnumaður, og þó að samvinnustefnan geti leitt til ríkisverslunar á sínum tíma, þá hygg jeg, að aldir líði áður en það verður.
Hvað seðlaútgáfufrv. viðvíkur, er það misskilningur hjá hv. þm. (J. B.) að vera því mótfallinn, því það hefir að geyma ákvæði um, að ríkið taki í sínar hendur þann seðlaútgáfurjett, sem bankinn nú hefir, lögum samkvæmt, í vissan tiltekinn tíma, og það talsvert fyr en sjerleyfislög Íslandsbanka, hin upphaflegu, heimila. Það atriði, hvort rjett hefði verið af stjórninni að taka bankann nú, kemur til umræðu á öðrum tíma, en ekki nú. En það bið jeg hv. þm. (J. B.) að athuga, að þegar um framtíðarmál er að ræða, þá er ekki stefnumismunurinn fólginn í því, hve fljótt málið kemst í framkvæmd, heldur hvert markmiðið er, sem stefnt er að.
Hv. þm. A.-Sk. (Þorl. J.) mintist á seðlaskrifstofuna og seðlaskömtunina, og hvað stjórnin hugsaði sjer að gera þar. Þetta virðist nú dálítið einkennileg spurning, þar sem málið er í nefnd hjer á þinginu. Get jeg þó sagt honum það, að nái tillögur viðskiftanefndarinnar um viðskiftahömlurnar fram að ganga, þá er stjórninni engin eftirsjón í seðlaskömtuninni. Þetta var auðvitað bráðabirgðaráðstöfun, gerð samkvæmt stefnu þingsins í fyrra í þessu máli, og í viðnámsáttina gegn því, að hagur landsins færi versnandi. Sjái þingið sig um hönd í þessu, er það fól stjórninni í fyrra að framkvæma, þá er svo langt frá því, að stjórnin geri þetta að fráfararatriði. Slíku ástfóstri við verslunarhömlur hefir hún ekki tekið. Það eru næg mál önnur, sem nær stæði, að stjórnin gerði að fráfararatriði, og sýnist sjálfsagðast, að það sjeu ekki smærri málin.
Sami hv. þm. (Þorl. J.) mintist á stefnu stjórnarinnar í bankamálunum. Því er áður svarað. Málin eru í nefnd og munu rædd hjer á sínum tíma. Hygg jeg, að við þetta tækifæri sje nægilegt að minnast þess eins, að stjórnin mun leggja mikla áherslu á, að með seðlaútgáfufrv. sje ekki farið svo, að landinu stafi tjón af.
Hv. 4. þm. Reykv. (M. J.) mintist á hrossasöluna og kolakaupin í sambandi við hana. Honum hefir förlast athyglin, er jeg mintist á mál þetta áður hjer í hv. deild. Jeg skal nú endurtaka það, að nauðsynlegt var, að skip það, sem átti að fara þrjár ferðir hingað eftir hrossum, hefði einhvern flutning hingað upp. Hins vegar átti stjórnin um þessar mundir í allmiklum erfiðleikum með það að útvega landinu tryggilegan kolaforða. Hún greip því þetta tækifæri, sem þarna fjekst. Samningurinn um kaup á 2000 hrossum og innflutning á 4000 tonnum af kolum var í einu lagi, og þar, á meðal annars, samið fyrirfram um flutningsgjald á kolunum, enda var það eitt undirstöðuatriði í samningnum, af því skipið var leigt eftir því. Og um flutningsgjaldið á kolunum er það að segja, að það var venjulegt flutningsgjald á þeim tíma, og eigi umþokað, þótt hátt væri. Að öðru leyti var hestaverðið fob Reykjavík alveg sjerstakur liður í samningnum.
Jeg hjó eftir því hjá sama hv. þm. (M. J.), að hann ætlaðist til þess, að ef ný stjórn kæmi, þá skifti hún um anda og aðferð. Þetta er auðvitað eigi nema eðlileg krafa. Því til hvers væri þessi barátta, ef stefnan og andinn ætti að vera hinn sami.
Þegar jeg nú að lokum geri alt upp, þá er það í raun og veru aðeins eitt einasta atriði, sem ekki er fullhrakið af öllum ásökununum á stjórnina. Hinum öllum hafa stjórnarandstæðingamir orðið að kingja. Og þetta atriði er, að stjórnin hafi ekki útvegað lán í Ameríku, eða má ske öllu heldur hitt, enga tilraun til þess gert. Þetta er satt. En hefði stjórnin einkum viljað verja sig fyrir slíkri ásökun, þá hefði hún auðvitað getað gert tilraunina; en hún hefir ekki kært sig um slíkt, og það sökum varfærni í fjársökum. Það verður því aðalhlutverk komandi stjórnar, til þess að skifta um anda og aðferð, að varast varfærni núverandi stjórnar í fjársökum, og það óska jeg, að hv. þm. glöggvi sig á, þá er þeir greiða atkvæði.
Hv. þm. Str. (M. P.) mintist á það, sem jeg var svo óheppinn að segja í fyrstu ræðu minni, að það væru atvinnumálin, sem nú væru stærstu vandamálin, og erfiðust úrlausnar. Til þess að fást við þau, þyrfti í raun og veru afburðamenn, og treystu menn mjer ekki til þess, sem mjer þætti eigi nema eðlilegt, þá væri jeg fús til þess að fara, ef þeir vísuðu á annan betri, sem fáanlegur væri. Jeg var nú svo einfaldur að halda það, að menn tækju mig trúanlegan, og án þess nokkur undirhyggja byggi undir. Mjer fellur það illa, að hv. þm. Str. (M. P.), sem er. náinn samvinnumaður minn undanfarin þing, skuli halda, að þetta sje af þeim toga spunnið, að náfrændur hans í stjórninni, forsætisráðherra og fjármálaráðherra, hafi fengið mig til þess að fórna mjer. Jeg sje nú eftir því að hafa látið þetta um mælt, fyrst ekki var hægt að taka það blátt áfram, eins og það var talað og meint. Hið sanna er, að jeg ráðgaðist um þetta við engan, og er það að einskis hvötum gert. En úr því jeg hefi sagt það, stend jeg við það, en jeg krefst þess, að hv. þm. bendli enga aðra við þessa ákvörðun mína.
Sami hv. þm. (M. P.) fór nokkrum orðum um það, og fann að stjórninni fyrir, að hafa ekki sýnt af sjer þá föstu stefnu, sem þyrfti til að mynda flokka í þinginu. Um þetta hefir einmitt verið farið svo rjettmætum orðum af hæstv. forsrh. (J. M.) og hv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.), að jeg bæti ekki þar um. það er ekki oft, að flokkar myndist á þann hátt frá grundvelli, að landsstjórnin verði til að skapa flokkinn með stefnu sinni. Eðlilegasta og besta tilorðning flokks er sú, þegar einhver maður rís upp, sem hefir hugsjónir fram að flytja, og leitar þeim fylgis. Ef þær svo fá fylgi, þá myndast flokkur um þær, og svo eru náttúrlega valdir forkólfar þess flokks, sem svo róa að því öllum árum að reyna að bera hugsjónirnar fram til sigurs og framkvæmda. Þannig er rjett myndun flokka, og á þennan eina hátt geta myndast traustir og þingnýtir flokkar. (M. P.: Jeg veit ekki til, að stjórnin hafi fasta stefnu í nokkru máli). Það er næsta kynlegt, að hv. þm. Str. (M. P.) skuli vera að álasa stjórninni fyrir stefnuleysi. Jeg hefi enn sem komið er ekki getað áttað mig á því, hvaða stefnu hann fylgir í nokkru stórmáli. Þótt hann hafi áhuga á berklaveikismálinu, þá tel jeg það ekki með stórum stefnumálum. Hv. þm. (M. P.) ætti að geta sjeð það, að það lýsir sjer ákveðin stefna í þeim málum stjórnarinnar, sem nú liggja fyrir þinginu. Og þótt vjer ráðherrarnir sjeum ekki sammála um öll mál, þá höfum vjer varast að leggja fyrir þingið önnur mál en þau, sem okkur greinir eigi verulega á um, eins og t. d. skattamálin, sem eru vel fallin til að skifta mönnum í flokka. Einmitt sú stefna, sem stjórnin hefir tekið upp í þeim málum, er nokkuð greinileg, en það er að hneigjast að beinum sköttum frekar en óbeinum. Fjárhagur landsins er samt þannig nú, að nauðsynlegt er að afla landssjóði fjár með einhverju móti. Verður því óhjákvæmilegt að nota þær aðferðir, sem best duga til þess í bráð, þótt þær fari ekki eftir „principum“ þeim, sem í framtíðinni væri æskilegast að fylgt væri, og þess vegna verður skattastefna stjórnarinnar nú ekki eins greinileg og ella hefði orðið.
Í frv. um fasteignaskatt er gerður verulegur munur á fasteignunum eftir því, hvort þær eru lönd og lóðir, eða hús og önnur slík mannvirki. Hjer er því lagt til hæfis fyrir ákveðna stefnu, sem augsýnilega getur orðið þýðingarmikil í framtíðinni, og ekki hefir áður eiginlega verið til í okkar skattamálum. Einnig er með tekjuskattinum mörkuð greinilegri stefna en áður hefir verið í þeim lögum.
Hvað snertir stefnu í fossamálunum, þá hefir stjórnin tekið þar ákveðna afstöðu. En að því er viðkemur eignaratriðinu í því máli, sem mikill ágreiningur hefir orðið um, þá get jeg ekki sjeð, að það hafi mikla praktiska þýðingu í þessu tilliti. Jeg hygg,að það megi fremur teljast lögfræðilegt en tekniskt mál, og að þar geti því trauðla verið um ákveðna flokkaskiftingu og þýðingarmikla að ræða í sambandi við það atriði. Aftur á móti er öðru máli að gegna um önnur atriði í fossamálinu. Þar eru þegar komnar í ljós tvær nokkuð greinilegar stefnur. Önnur er sú, að vera hræddur við stórvirkjun fossa, og sjerstaklega útlent fólk og útlent fje. Innflutningur fólks mundi fara með þjóðernið, og útlenda fjeð drotna yfir hagsmunum manna. Það sje um að gera að girða sem best fyrir þetta með lögum. Hin er sú, að sleppa ekki tækifærum, ef þau gæfust, til þess að koma einhverju af okkar stærri fallvötnum í gagn svo fljótt, sem unt er, og vogast til að hafa þar til aðstoð af útlendum mönnum og útlendu fje. Stjórnin hneigist nú að þessari stefnu og trúir ekki öðru en þá gát megi hafa á þessu, að hagsmunir landsmanna og sjálfstæði sje fulltrygt fyrir því. En vitaskuld eru ekki núna miklar horfur á, að langt komist áleiðis í þessum efnum næstu árin.
Jeg held, að hver maður ætti að geta sjeð, að það er ekkert sjerlega gott árferði fyrir hugsjónamál nú eða önnur stefnumál. Það er svo háttað á flestum sviðum, að það getur tæpast verið um framsókn að ræða, heldur frekar afturhald, og það er líka það hyggilegasta að haga því svo, eins og þegar franski herinn hopaði aftur frá landamærum Belgíu og Frakklands, til þess að fá betri aðstöðu og geta svo síðar sótt fram á ný. Það liggur því í augum uppi, að það er næsta örðugt nú að marka stefnulínur í framtíðinni. Lætur því næsta undarlega í eyrum, þegar hv. þm. standa upp hver á fætur öðrum og saka stjórnina um getuleysi hennar í þessu efni. Tel jeg slíkt bera vitni um þekkingarskort eða aðgæsluleysi á ástandinu, sem nú ríkir, jafnt hjer á landi sem annarsstaðar.