17.03.1921
Neðri deild: 25. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 571 í D-deild Alþingistíðinda. (3771)

87. mál, vantraust á núverandi stjórn

Jakob Möller:

Jeg þykist skilja, að hæstv. forsrh. (J. M.) vill finna afsökun, segjum ónákvæmni sinni, í því, að ritstjórar fari stundum með rangt mál. Þetta getur verið, en jeg vil algerlega vísa því frá mjer. Jeg fer aldrei með rangt mál vísvitandi. Og þótt svo væri, sem ekki er, þá má þó gera ráð fyrir því, að þingið þykist verða að gera hærri kröfur í þeim efnum til ráðherra en ritstjóra. En ef hæstv. forsrh. (J. M.) ætlar að fara að jafna sjer við blað mitt, sem hann hefir þó leyft sjer að viðhafa niðrandi orð um, þá verð jeg að mótmæla þeim samanburði.