17.03.1921
Neðri deild: 25. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 575 í D-deild Alþingistíðinda. (3791)

87. mál, vantraust á núverandi stjórn

Forseti (B. Sv.):

Jeg get fallist á tillögu hæstv. forsrh. (J. M.), og verður því gengið til atkv. um ástæður þær, er hv. 2. þm. Skagf. (J. S.) færir fyrir því, að hann neitar að greiða atkv., að því viðbættu, að svo verður litið á, ef atkv. falla eins og áður, að þá sjeu um leið feld atkvæði um undanfærslu hvers einstaks þingmanns um sig, ef fleiri kynnu að verða, er fram færðu sömu mótbárur sem sá hv. þm. (J. S.), sem nú verða greidd atkvæði um. Skoða jeg þessa atkvæðagreiðslu jafngilda sem sjerstakt nafnakall um hvern einstakan deildarmann, er feta kynni nú í fótspor þessara tveggja hv. þingmanna.