19.03.1921
Neðri deild: 27. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 581 í D-deild Alþingistíðinda. (3807)
87. mál, vantraust á núverandi stjórn
Forseti (B. Sv.):
Jeg veit ekki heimild þess í þingsköpum eða þingvenjum, að nokkur þingmaður megi pára neitt í gerðabók þingdeildar milli funda, hvorki athugasemdir um lögmæti forsetaúrskurðar nje annað. Úrskurðurinn um afdrif hinnar rökstuddu dagskrár hv. 1. þm. Rang. (Gunn. S.) var feldur þegar eftir atkvæðagreiðsluna, og var þá engin athugasemd við hann gerð og ekki fyr en málinu var lokið og fyrir nokkru komið af dagskrá, eins og frá er skýrt í fundargerðinni. Úrskurðurinn var rjettur, enda kemur hann heim við skoðanir annara þeirra manna, er þar mega best skyn á bera. Tel jeg þessa fimm þingmenn hafa gert sig seka um þingsafglöpun, og víti jeg þá fyrir tiltæki þeirra.