19.03.1921
Neðri deild: 27. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 581 í D-deild Alþingistíðinda. (3808)

87. mál, vantraust á núverandi stjórn

Jón Þorláksson:

Jeg mótmæli því, að þessir þingmenn hafi gert sig seka um þingsafglöpun og að forseti hafi rjett til að víta þá, þótt þeir hafi gert athugasemd við bókunina milli funda. Til þess virðist og ætlast, með því að láta bókina liggja frammi, að þingmenn geti gert við hana sínar athugasemdir.