19.03.1921
Neðri deild: 27. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 590 í D-deild Alþingistíðinda. (3830)
87. mál, vantraust á núverandi stjórn
Jón Þorláksson:
Jeg stend upp til þess að stökkva köldu vatni á þann eld, sem kviknað hefir hjer í deildinni út af athugasemd okkar í gerðabókinni. Hefir sá eldur þegar gert suma hv. þm. nokkuð heita.
Jeg viðurkenni það, að jeg er nýr þm. og óvanur þingreglum og þingvenjum. En þeirri venju er jeg vanur í bæjarstjórn hjer, að sá, sem hefir eitthvað að athuga við fundargerð bæjarstjórnarfundar, má skrifa þær athugasemdir inn í fundarbókina sjálfa. Jeg spurði einn eldri þm., hvort ekki mundi mega fylgja þessari sömu reglu einnig hjer á Alþingi, og kvað hann já við því. En ef skakt er að farið hjá mjer og jeg hefi með þessu brotið gamla og góða þingvenju, þá er þar engu um að kenna nema ókunnugleik mínum í þessum efnum. Tel jeg mig ekki of góðan að biðja afsökunar á því.