19.03.1921
Neðri deild: 27. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 592 í D-deild Alþingistíðinda. (3833)

87. mál, vantraust á núverandi stjórn

Forsætisráðherra (J. M.):

Jeg hefi ekki verið við þessar umræður og skal því ekki mikið um þær segja. Vil aðeins beina því til hæstv. forseta, hvort honum sýndist ekki rjettara að halda sig við úrskurðanir eða þesskonar, en vera ekki að halda langar ræður úr forsetastól. Það er ekki venja. Og jeg vona, að hæstv. forseti skoði það ekki sem ókurteisi af mjer, þótt jeg bendi honum á þetta. (Jak. M.: Væri það ekki fremur þingmannanna sjálfra en utanþingsmanna að finna að þessu, ef þeim sýndist þess þörf?). Líklega ætti stjórnin að mega tala um þetta líka. En sem sagt, þetta eru aðeins bendingar til hæstv. forseta.