19.03.1921
Neðri deild: 27. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 595 í D-deild Alþingistíðinda. (3840)

87. mál, vantraust á núverandi stjórn

Hákon Kristófersson:

Jeg er algerlega ósamþykkur þeirri uppástungu hv. þm. Dala. (B. J.), um það, að grafa svo þingbókina, að þm. hafi ekki nokkurn veginn greiðan aðgang að henni milli funda.

Jeg tel það óafsakanlega óvarkárni af hv. þm. að skrifa inn í þingbókina utan funda, og skil ekkert í því, að sæmilega gáfaðir og vanir þm. skuli hafa látið sjer detta slíkt í hug. Enda hefir nú hv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) sjeð að sjer og gert yfirbót, og það ættu þessir þm. allir að gera. því, eins og gefur að skilja, eiga hv. þm. kost á að gera sínar athugasemdir við bókunina á þingfundi, þegar bókin er lesin upp, en milli funda er vitanlega öllum óheimilt að færa athugasemdir sínar inn í bókina. Hvaða venju er fylgt á bæjarstjórnarfundum Reykjavíkur eða Ísafjarðarkaupstaðar, tel jeg hjer engu máli skifta.

En þó þykir mjer skörin færast enn upp í bekkinn, að hæstv. forsrh. (J. M.) skuli láta sjer sæma að standa upp og ávíta hæstv. forseta fyrir það að segja nokkur orð úr forsetastól, vitandi það þó, að hann þarf að verja skýringar sínar á þingsköpum, þar sem að honum er beinst af mörgum þm., er telja hann hafa rangt fyrir sjer. Þessa á forseti ekki kost nema frá sæti sínu, enda síst neitt við það að athuga.