21.03.1921
Neðri deild: 28. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 598 í D-deild Alþingistíðinda. (3848)
87. mál, vantraust á núverandi stjórn
Forseti (B. Sv.):
Það var tilætlun okkar beggja, hv. skrifara (M. P.) og mín, að bókunin bæri með sjer, að vítin væru hin sömu. Ef hv. þm. þykir þetta orka tvímælis, þá bið jeg þá að bera fram formlega athugasemd við bókunina. Ef enginn gerir það, þá ber jeg gerðabókina undir atkvæði án athugasemda.
Var fundargerðin síðan undir atkvæði borin og samþykt með öllum greiddum atkv. gegn einu, og síðan undirskrifuð.