05.04.1921
Neðri deild: 35. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 206 í B-deild Alþingistíðinda. (390)
2. mál, erfðafjárskattur
Jón Þorláksson:
Út af ummælum háttv. þm. Ak. (M. K.) vil jeg geta þess, að jeg hefi beðið hæstv. forseta (B. Sv.) að bera tillögu mína upp á eftir tillögu nefndarinnar, ef hún verður samþ., og láta hana koma þar inn, sem við á.
Viðvíkjandi ummælum hæstv. fjármálaráðherra (M. G.) um fjórðungsgjöfina, vil jeg taka það fram, að hún á því að eins að bera sama skatt og arfar til lífserfingja, að hún sje gefin í einu lagi, en ekki smágjafir hingað og þangað. Þetta held jeg að orki varla tvímælis eftir tillögu minni, og þarf því ekki að valda misskilningi.