18.05.1921
Neðri deild: 72. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 728 í D-deild Alþingistíðinda. (3908)

108. mál, símagerð og póstgöngur í Dalasýslu og Barðastrandarsýslu

Magnús Pjetursson:

Jeg bjóst við að komast hjá því að taka til máls í þessu hjegómamáli. En af því að hv. þm. Ísaf. (J. A. J.) gat ekki setið á sjer, þá get jeg það ekki heldur. Jeg vildi þá skjóta því til hæstv. stjórnar, út af fyrri lið fyrirspurnarinnar, hvort hún muni ekki, að í framsöguræðu á þinginu 1919 var bent á, að hún skyldi gera hjeruðum þessum aðvart, ef hún sæi sjer ekki fært að veita fjeð, til þess að þau fengju sjálf tækifæri til að útvega sjer lán annarsstaðar, á ábyrgð ríkissjóðs. Þau hefðu má ske getað það, ef þau hefðu verið aðvöruð í tíma.

Mjer þykir þetta leiðinlegt mál, og ætla ekki að blanda mjer í umræðurnar um þetta síðara atriði, nje, eins og sumir hv. þm., að fara að lesa upp úr þingtíðindunum umræðurnar um það 1919. En jeg mótmæli því, sem haldið er fram um þessa miklu óhægð, er þessum hjeruðum sje að þessari póstleið. Því að hún er vitanlega aðeins sú, að nokkrir hreppar geta ekki svarað brjefum með sama pósti, og að nokkrir bæir fá brjefin sín seinna. Hv. þm. Dala. (B. J.) hefir líka játað, að með því fyrirkomulagi, sem fyrirhugað er af póstmeistara, komi þessi póstleið Dalamönnum að fullum notum.

Hv. þm. Ísaf. (J. A. J.) sagði, að vegirnir væru heldur bættir, ef póstleiðin lægi um þá. Jeg sje ekki, að neitt samband sje þar á milli, og eins og hæstv. atvrh. (P. J.) tók fram, þá eru ekkert frekar bættir þeir vegir, er póstar þurfa að fara um, og þeir vegir, sem bættir eru, eru ekki bættir aðeins vegna póstanna, heldur af annari nauðsyn.

Jeg vildi ráða hv. þm. að lesa þingtíðindin frá 1919 og brjef póstmeistara; þeir munu þá betur átta sig á þessu, heldur en hlusta á þetta skraf um það, sem þeim er meira eða minna ókunnugt um, eða þá að fara vestur og skoða staðhættina til að sannfærast um, hvort fyrirkomulagið er hentugra.