05.04.1921
Neðri deild: 35. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 206 í B-deild Alþingistíðinda. (391)

2. mál, erfðafjárskattur

Fjármálaráðherra (M. G.):

Hv. 1. þm. Reykv. (Jak. M.) vill telja þau ein fósturbörn, sem svo eru nefnd í arfleiðsluskrá, og er þá skýrt, hvað við er átt. En jeg held, að fáir hefðu skilið þetta að fyrra bragði. En með þessari skýringu finst mjer brtt. enn fráleitari. Menn geta ákveðið skattinn með því að kalla þá, sem þeir arfleiða, fósturbörn, og eftir skýringu háttv. þm. (Jak. M.) gildir það einu, hvort börnin hafa nokkurn tíma hjá þeim verið eða ekki.