15.02.1921
Sameinað þing: 1. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í B-deild Alþingistíðinda. (3913)

Þingsetning

Forsætisráðherra (J.M.):

Þá vil jeg biðja elsta þingmanninn, háttv. 3. landsk. þm. (S. J.), að ganga til forsetasætis og gegna forsetastörfum, þar til kosning hefir farið fram á forseta sameinaðs þings.

Aldursforseti (S.J.) gekk þá til forsetastóls og kvaddi sjer til aðstoðar, sem fundarskrifara, þá

Guðmund Björnson, 6 landsk. þm. og Benedikt Sveinsson, þm. N.-Þ.

Rannsókn kjörbrjefa.

Skiftust nú þingmenn í kjördeildir og urðu í

1. deild:

Benedikt Sveinsson,

Björn Kristjánsson,

Halldór Steinsson,

Hjörtur Snorrason,

Jakob Möller,

Jón Baldvinsson,

Pjetur Þórðarson,

Sigurður Hjörleifsson Kvaran, Sigurður Jónsson,

Sigurður Stefánsson,

Þorleifur Jónsson og

Þorsteinn Jónsson.

2. deild:

Einar Árnason.

Eiríkur Einarsson,

Guðjón Guðlaugsson,

Guðmundur Guðfinnsson,

Guðmundur Ólafsson,

Jóhannes Jóhannesson,

Karl Einarsson,

Magnús Kristjánsson,

Ólafur Proppé,

Pjetur Jónsson,

Stefán Stefánsson,

Sveinn Ólafsson og

Þorleifur Guðmundsson.

3. deild:

Bjarni Jónsson,

Björn Hallsson,

Guðmundur Björnson,

Gunnar Sigurðsson,

Hákon Kristófersson,

Jón Auðunn Jónsson,

Jón Þorláksson,

Magnús Guðmundsson,

Magnús Jónsson,

Magnús Pjetursson,

Pjetur Ottesen,

Sigurður Eggerz og

Sigurjón Friðjónsson.

Kjörbrjefadeildir skiftu með sjer kjörbrjefum þann veg, er lög mæla fyrir, að fyrsta deild fjekk annari, önnur þriðju og þriðja fyrstu.

Var nú fundi frestað.

Kl. 3 var fundinum fram haldið, og höfðu þá kjörbrjefadeildir lokið störfum sínum.