07.04.1921
Neðri deild: 37. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 226 í B-deild Alþingistíðinda. (456)
46. mál, vörutollur
Frsm. (Jón Auðunn Jónsson):
Jeg hefi í rauninni litlu við að bæta nál. fjárhagsnefndar. Nefndin hefir orðið sammála um það að halda enn í vörutollsfyrirkomulagið, jafnvel þótt ýmsum nefndarmönnum væri það óljúft og teldu rjettara, að nú væri byrjað á verðtollsfyrirkomulagi. Annars eru aðalbreytingar þær, sem nefndin leggur til að gerðar verði á frv., að skift er öðruvísi niður í flokkana en áður. Einkum hefir nefndin viljað koma öllum útgerðar- og búnaðartækjum í 2. flokk, þó þau hafi áður verið í 6. flokki, og því verið tolluð óeðlilega hátt. Hins vegar leggur nefndin til, að hækkað verði gjaldið á 6. fl., þannig, að lagðar verði 10 kr. á 10 kg. í stað 3 kr. áður. Sömuleiðis hefir nefndin lagt til, að sett verði 1 kr. gjald á hvert kg. í póstbögglum, en að öðru leyti hefir nefndin ekki breytt frv., eins og sjá má á þskj. 183, og þarf jeg því ekki að fjölyrða um það, en get snúið mjer að brtt. á þskj. 203. Mjer finst þær helst til fljótfærnislegar og ekki falla vel inn í frv., og ekki heldur rjettmætar. Svo eru sum orðatiltækin nokkuð óákveðin, t. d. þar sem talað er um smíðaáhöld. Þar gætu t. d. heyrt undir allskonar stóriðjuáhöld, hvort sem háttv. flutningsm. ætlast til þess eða ekki. Annars mun fjárhagsnefnd athuga þær til 3. umr., og væntanlega koma sjer saman við háttv. flm.
Hins vegar finst mjer 3. liður brtt. sjálfsagður, og þykist mega fullyrða, að öll nefndin sje meðmælt þeirri brtt.
Fleira þarf jeg svo ekki að segja, annað en það, sem sjálfsagt er öllum sjáanlegt, að millifærslan milli flokkanna hefir nokkurn tekjumissi í för með sjer fyrir ríkissjóð, en hjá því varð ekki komist, þar sem nefndin sá sjer ekki fært að hækka svo á öðrum liðum, sem tekjumissinum næmi.