07.04.1921
Neðri deild: 37. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 235 í B-deild Alþingistíðinda. (465)
46. mál, vörutollur
Þorleifur Guðmundsson:
Jeg ætla nú ekki að fara að ræða frv. þetta, enda hefi jeg þegar tekið afstöðu um það í nefndinni.
En af því að mjer þótti kenna nokkuð mikils norðanbelgings í ræðu háttv. 2. þm. Skagf. (J. S.), þá neyddist jeg til að standa upp, því að orðum hans get jeg ekki tekið þegjandi. Ekki þó svo mjög vegna sjálfs mín, heldur vegna meðnefndarmanna minna.
Háttv. þm. (J. S.) ljet þau orð falla, að nefndin hefði haft sjávarútveginn meira í huga, enda sje hún þannig skipuð, að þeir menn hafi litla þekkingu á landbúnaði. Þessu verð jeg að mótmæla, því að í nefndinni eiga sæti gamlir og góðir bændur, sem vissu vel hvað þeir voru að gera.
En um brtt. á þskj. 203 vil jeg segja það, að mjer finst hún hafa á sjer nokkuð mikinn orðhengilshátt.
Það var athugað í nefndinni, hvort orðið „jarðyrkjuáhöld“ næði ekki einnig yfir heyvinslutæki, og voru allir sammála um það. Og bygði jeg þá ályktun mína á því, að á Suðurlandi teljum við það einnig að yrkja jörðina að slá hana og hirða af henni heyið, og munu hinir nefndarmennirnir hafa bygt á því sama, og ber jeg eins mikið traust til landbúnaðarþekkingar þeirra eins og háttv. 2. þm. Skagf. (J. S.), því að þeir hafa engu síður vanist landbúnaði en hann, og sumir að líkindum lengur.