07.04.1921
Neðri deild: 37. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 238 í B-deild Alþingistíðinda. (469)

46. mál, vörutollur

Frsm. (Jón Auðunn Jónsson):

Það eru örfá orð út af niðurröðuninni í 2. fl. Jeg hefi ekki haldið því fram, að röðunin í stj.-frv. væri góð. En fjárhagsnefnd vildi þó ekki breyta henni, vegna þess, að svona hefir röðunin í þessum flokki verið um mörg ár. Og við hjeldum, að menn mundu fljótari að átta sig á lögunum, ef sú gamla röðun hjeldist og ekki væri breytt til. En hitt, skal jeg taka fram, að við sáum einmitt, að betur hefði farið, ef breytt hefði verið allri niðurröðun í 2. fl.