27.04.1921
Efri deild: 53. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 243 í B-deild Alþingistíðinda. (479)
46. mál, vörutollur
Fjármálaráðherra (M. G.):
Jeg get þakkað nefndinni meðferð hennar á frv., og skal ekki verða fjölorður. Mjer skilst, eftir 1. brtt. nefndarinnar, að hún ætlist til, að tunnuhlutar teljist til 1. flokks, en heilar tunnur til 2. flokks. (B. K.: Já). Mjer þykir það dálítið undarlegt, að það skuli vera mismunandi tollur á tunnum, eftir því hvort þær eru slegnar sundur eða eigi, og jeg vildi gjarna vita, á hverju nefndin byggir þetta. Það er alveg rjett hjá nefndinni í 3. brtt. að færa niður tolleininguna, og er nauðsynlegt vegna þeirra breytinga, sem gerðar voru í Nd. Gull og silfur væri sett tollfrítt í frv., með tilliti til þess, að Landsbankinn fengi seðlaútgáfurjettinn, og yrði þá ekki erfitt að hafa eftirlit með innflutningi á því, þareð það væru ekki aðrar stofnanir, sem fengju það sent hingað. Annars er jeg ekkert á móti brtt. nefndarinnar.
Annars vil jeg um þetta frv. taka það fram, að vegna hinna stöðugu breytinga, sem þing eftir þing hafa verið gerðar á flokkaskiftingunni í vörutollslögunum, eru allar innheimtur miklu örðugri en ella mundi, og yfirleitt verður að segja, að allar þessar færslur milli flokka hafa til muna skemt lögin.
Þessu hefir verið breytt meira og minna á hverju þingi, og er leitt, ef haldið verður áfram að flytja upp í 1. flokk, og það mun sýna sig, að nú kemur næst í Nd. heil runa af vörutegundum, sem á að flytja upp í 1. fl., því að það er altaf svo, að einhverjir þingmenn hafa eitthvað á hjarta, sem þeir gjarna vilja láta lækka toll á. Nú er 2. flokkur orðinn heil blaðsíða, en var áður að eins nokkrir liðir.