27.04.1921
Efri deild: 53. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 244 í B-deild Alþingistíðinda. (480)

46. mál, vörutollur

Frsm. (Björn Kristjánsson):

Hæstv. fjrh. (M. G.) spurði hversvegna nefndin hefði flutt tunnuhluta og gjarðir upp í 1. flokk, en ekki heilar tunnur, og var það af því, að hjer eru reistar verksmiðjur, og ætlaðist nefndin til, að þær fengju efnið með lægra tolli, því að það veitir atvinnu við að setja tunnurnar saman. Þar að auki er það venja að flytja inn tunnur ósamsettar. nema því að eins, að þær sjeu fluttar fullar af einhverju öðru, og koma þá í 1. fl. sem umbúðir. Sú var að minsta kosti venja, þegar jeg var fyrir norðan, að kjöttunnur komu ósamsettar. Hvort deildinni þykir þetta næg ástæða, verður hún að skera úr með atkvæði sínu.