09.04.1921
Efri deild: 39. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 275 í B-deild Alþingistíðinda. (511)
23. mál, stofnun og slit hjúskapar
Sigurður Hjörleifsson Kvaran:
Jeg býst við, að jeg greiði atkvæði með brtt. á þskj. 251, þótt jeg reyndar sje ekki allskostar ánægður með hana. Lífið er svo margbreytilegt, að margt getur komið fyrir, sem ekki er með öllu rjett að banna. Samt sem áður er þetta góð regla, — því að jeg lít á þetta sem reglu —, en það vantar einungis að leyfa megi undantekningar undir vissum kringumstæðum. T. d. ef flogaveikur maður vill giftast konu, sem engar líkur eru til að geti átt barn. Hvað væri á móti því? Hjer vantar möguleikann til þess að geta gert undantekningar. En þar sem þetta er til 3. umr. hjer nú, er ekki hægt að gera breytingar á því hjeðan af, en jeg vonast til, að þær verði gerðar í háttv. Nd. Jeg er því meðmæltur aðalreglunni, og mun því, eins og áður er sagt, greiða atkvæði mitt með brtt. á þskj. 251, í því trausti, að breyting verði gerð á þessu í háttv. Nd.