19.02.1921
Neðri deild: 4. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 291 í B-deild Alþingistíðinda. (532)
6. mál, einkasala á tóbaki
Magnús Jónsson:
Þetta er að eins örstutt svar. Ef jeg hefði setið í sæti háttv. þm. Borgf. (P. 0.) eða annarsstaðar, jafnfjarri hæstv. fjrh. (M. G.), þá gæti jeg skilið, að honum hefði misheyrst, en þar sem jeg nú sit rjett hjá honum, er mjer gáta hvernig hann gat misskilið orð mín svo hrapallega.
Hæstv. fjrh. (M. G.) sagði, að jeg hefði sagt, að tilgangur frv. væri að birgja landið með víni. Jeg sagði einmitt, að það væri ekki tilgangurinn, og gæti ekki verið tilgangurinn. Jeg sagði, að einkasala gæti verið afsakanleg, þegar um bjargráðaráðstöfun væri að ræða, svo að birgja þyrfti landið að nauðsynjum, sem kaupmenn ættu erfitt með að útvega, eða ef ná þyrfti vörum úr einhverjum heljargreipum; en hjer er hvorugu því til að dreifa. Hjer er alveg nýtt á ferðinni, sem sje það, að taka einkasölu á vörum, eingöngu og að eins í þeim tilgangi að ná í peninga í ríkissjóð. Jeg tel það alls ekki óhæfu, að ríkissjóður fái kaupmannaágóðann, en jeg átti við það, að ágóðinn yrði sennilega rýr, ef framkvæmdir væru allar í höndum stjórnarinnar. Það er miklu umsvifaminni aðferð, og um leið öruggari tekjustofn, að hækka tollinn en setja alt þetta „apparat“ af stað.
Hæstv. fjrh. (M. G.) spurði, hversvegna það hefði svo miklu verri áhrif á bannmenn að taka kaupmannaágóðann heldur en að tolla vínið. Það er viðurkent, að flytja verður inn „spíritus“ til lyfja o. fl., og það er ekkert athugavert við það, að lagður sje á það tollur, en hitt mundi skapa mikla erfiðleika. Það er gamalt orðtak, sem segir, að það sje lakur kaupmaður, sem lasti sína vöru. Freistingin alt af sú, að láta verslunina ganga vel, og ríkissjóðinn fá tekjur. Hjer á ríkið að verða slíkur kaupmaður, en ekki vil jeg þar með segja, að landsstjórnin vilji eggja menn til að brjóta landslög, en það hlýtur að gera stöðu hennar mjög hála og varhugaverða. Jeg er hissa á því, að nokkur fjármálaráðherra skuli vilja fara þessa leið. Hæstv. fjrh. (M. G.) sagði, að ef gróðinn lenti hjá kaupmönnum, þá „generaði“ það ekki bannmenn. Hvernig vill hann sanna það? Víst hefir það „generað“ bannmenn. En þeir eru bara vandlætingarsamari þegar landsstjórnin á í hlut en prívatmenn. Hjá henni verður alt að fara fram með sem fegurstum hætti, og auk þess eigum við hjer á Alþingi betri aðgang að stjórninni og hennar aðgerðum en einstökum mönnum og þeirra atvinnu.