04.04.1921
Neðri deild: 34. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 320 í B-deild Alþingistíðinda. (543)
6. mál, einkasala á tóbaki
Magnús Kristjánsson:
Áður en jeg sný mjer að málinu sjálfu, langar mig til að gera eina ofurlitla athugasemd við háttalag sumra háttv. þm. Það virðist svo, sem ræður sumra þeirra sjeu miðaðar við það, að þingið ætti að sitja alt árið, eða þá að nokkrir örfáir þingmenn hafi einkaleyfi til þess að teygja lopann sem lengst, algerlega að ástæðulausu, og það ekki síst þeir, sem annars þykjast vera mest á móti allri einokun, og á þetta þó ekkert sjerstaklega við umræðurnar í dag.
Jeg ætla þá að byrja á þeim, sem síðast settist, háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.). Hann kvartaði mikið um það, að áætlanir nefndarinnar væru ónógar, og starf hennar ófullnægjandi. Þessu verð jeg að mótmæla, því að þótt skýrslur, sem hann mintist á, um hagnað af versluninni, væru ekki í nefndarálitinu, komu þær skýrt fram í framsögunni og aths. við frv. Hinsvegar má máske segja, að þær sjeu ekki, frekar en aðrar áætlanir, alveg óyggjandi, og mun háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) sennilega kannast við það af eigin reynslu, að slíkt geti komið fyrir. Sami háttv. þm. (J. Þ.) talaði einnig um það, að mjer skildist, að sjálfstæði landsins gæti stafað hætta af samþykt þessa frv. Jeg þarf ekki að fara nákvæmlega út í þetta, enda mun háttv. þm. (J. Þ.) hafa sagt það í spaugi, þar sem jafnvitur maður á í hlut.
Ennfremur talaði hann um það, að varhugavert væri, að ríkið festi mikið fje í þessu, eins og nú væri ástatt um gjaldeyri. Þetta er rjett eins og hann haldi, að kaupsýslumenn þeir, sem annars mundu versla með vöruna, þyrftu ekkert að greiða fyrir hana, ekkert fje að festa í henni. En líklega kemur það nokkurn veginn í sama stað niður, hvaðan peningarnir koma, sem til þess ganga, frá ríkinu eða einstökum kaupmönnum. Ekki var það heldur rjett, sem hann sagði um verðlagið og álagninguna. Hann virtist rígbinda sig þar við hámarkið 75%, en gleymdi því, að hjer má fara alt niður í 25%, og verður það varla kölluð nein íþynging fyrir neytendurna, frá því, sem nú á sjer stað.
Annars er dálítið einkennileg framkoma andstæðinga þessa frv., ekki síst háttv. þingmanna Reykjavíkur, en þeir munu þykjast vera að framkvæma vilja og óskir sinna kjósenda, í mínu kjördæmi munu einnig vera margir andvígir þessu frv., og mörgum þeirra mun stórum mislíka fylgi mitt við það, en samt mun jeg fylgja fremur sannfæringu minni og því, sem jeg álít heildinni fyrir bestu, og væri vel að það gerðu sem flestir.
Það er ekki alveg rjett að tala um, að þetta sje svo rígbundið og einskorðað, og þess vegna sje ástæða til að efast um heppilegar framkvæmdir. Annars ætlaði jeg ekki að fara frekar út í þetta, að eins vekja eftirtekt á því, að þessar staðhæfingar háttv. þm. (J. Þ.) eru ekki á neinum rökum bygðar.
En svo vildi jeg víkja nokkrum orðum að ræðu hæstv. fjrh. (M. G.). Hann virðist ekki allskostar ánægður með gerðir nefndarinnar og hefir víst búist við, að hún mundi skila frv. frá sjer án breytinga. Mjer finst þetta til nokkuð mikils mælst, enda finst mjer að hæstv. fjrh. (M. G.) geti verið ánægður með það, að nefndin hefir aðhylst stefnu frv., og ekki gert aðrar breytingar en þær, sem hún taldi miða í þá átt, að þessari stefnu væri betur borgið og að málið fengi betri byr í gegn um háttv. deild.
Þá var það annað atriði, sem hæstv. fjrh. (M. G.) áleit ekki sem heppilegast í brtt, nefndarinnar, en það er um verðlagið. Jeg vil nú benda á þennan mun: í öðru tilfellinu er lagt á innkaupsverð vörunnar, en í hinu á vöruna með tolli. Og þá geta menn sjeð, að hækkun verður ekki eins gífurleg, þar sem miðað er við vöruna án tollsins. Má því ganga út frá, að þetta sje ekki svo fjarri sanni, og að þessi hækkun komi rjettlátlega niður. (Fjrh.: Þetta var líka í stj.frv.).
Jeg vil nú reyna að vera stuttorður, en ætla þó að drepa á fáein smáatriði í ræðu hv. 1. þm. Reykv. (Jak. M.). Hann virtist leggja aðaláhersluna á það, að ekki væri mikið leggjandi upp úr áliti meiri hluta nefndarinnar, því að það væri bygt á skökkum grundvelli, þar sem hún miðaði ekki við núverandi ástand. Þetta breytir engu, því að þó að miðað væri við ástandið eins og það er, myndi breytingin á verðlagi koma jafnt fram.
Þá hjelt sami háttv. þm. (Jak. M.) því fram, að með ríkiseinkasölu yrði varan áreiðanlega lakari, en þetta er algerlega ósannað mál, og ekki minstu líkur til þess.
Þá vildi hann og gera minna úr þessum hagnaði verslunarinnar, af því ekki yrði flutt inn óunnið efni til muna. Mjer finst þetta einmitt ekki ósennilegt, að flutt verði óunnið efni inn, til þess að vinna úr hjer, enda sje jeg ekki hvað ætti að vera því til fyrirstöðu. Ekki er iðnaður okkar svo margbrotinn, að okkur farist að leggja á móti framþróun hans.
Þá sagði hann enn fremur, að stj. yrði að eins óþarfa milliliður. Jeg skal nú að vísu játa, að mjer væri kærara að ríkið hefði ekki aðeins tekið heildsöluna að sjer, heldur líka smásöluna; en ástandið getur varla að þessu leyti orðið verra en verið hefir, og auk þess er mikið unnið við það að hafa hámarksverð á þessum vörutegundum, er ríkið tekur einokun á.
Að endingu skal jeg aðeins minnast örfáum orðum á brtt. þessara tveggja háttv. þm. Reykv. (J. Þ. og Jak. M.), sem álíta betra ráð til þess að bæta fjárhaginn og auka tekjur ríkissjóðs sje það að hækka tollinn, og verð jeg þá að bæta því við, að slík till. mundi varla hafa getað komið frá öðrum þm. Jeg skil vel, að þeim sje það áhugamál, þessum háttv. þm., að fella frv. og halda svo, að stefnan sje kveðin niður. En þeim verður ekki kápan úr því klæðinu, að stefnan verði kveðin niður, þó að þeim tækist að fella frv. í þetta sinn. Því trú mín er, að sjerhvert gott málefni hljóti að sigra að lokum, og svo mun einnig verða um þetta. En að hækka tolla á tolla ofan, getur ekki þýtt annað en að stuðla að því, að einstakir menn græði á kostnað fjöldans. Þess vegna er jeg staðráðinn í því að greiða atkvæði á móti þessari tollhækkun, hvernig sem að öðru leyti kann um frv. að fara.