04.04.1921
Neðri deild: 34. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 324 í B-deild Alþingistíðinda. (545)
6. mál, einkasala á tóbaki
Frsm. meiri hl. (Sveinn Ólafsson):
Jeg ætlaði, þegar jeg kvaddi mjer hljóðs, að svara þeim háttv. 1. þm. Reykv. (Jak. M.) og 3. þm. Reykv. (J. Þ.) nokkrum orðum, enda hafa þeir aðallega snúist í móti frv. og því, sem jeg hafði fram að bera því til gildis. En nú er svar mitt að því leyti óþarft orðið, að háttv. þm. Ak. (M. K.) hefir tekið flest það fram, sem jeg vildi sagt hafa.
Ein aðalástæðan hjá hv. 1. þm. Reykv. (Jak. M.) gegn brtt. meiri hl. við stj.frv. þetta er sú, að bygt sje á núverandi ástandi um verðlag tóbaks, og talnaútkoman því álitlegri og fegurri, og þess vegna megi gera ráð fyrir, að á „normal“-tímum verði niðurstaðan lakari. Þessu hefir nú háttv. þm. Ak. (M. K.) þegar svarað, og hefi jeg litlu þar við að bæta, enda tók jeg það fram í framsöguræðu minni, að meiri hl. hefði ekki bygt á núverandi ástandi um verð og innflutning, heldur meðaltali þriggja ára, 1915–17. og hefði hann þóst komast að rjettari niðurstöðu og ábyggilegri með því móti. Hitt er vitanlegt, að verðlag hefir lækkað síðan að stórum mun, en það þarf engu að breyta um niðurstöðu meiri hl. Þetta vildi jeg taka fram, til að fyrirbyggja misskilning.
Þeirri tilgátu, að lakari vörur yrðu fluttar inn undir ríkiseinkasölu en ella mundi, þarf jeg ekki að svara; því hefir verið af öðrum svarað.
Jeg þarf heldur ekki að minnast á tvísýnuna um að versla með tóbak og ávinninginn af tóbaksiðnaði, þar sem hann er stundaður. Hjer er að þessu sinni að eins um tóbaksverslun að ræða, sem bersýnilega getur verið ríkinu arðvænleg og landsmönnum haganleg. En eftir frv. er vel hægt að taka upp tóbaksiðnað, hvenær sem þess verður óskað og ríkið hefir tök á því.
Sami háttv. þm. hjelt því einnig fram, að ríkiseinkasalan mundi eigi hafa betri aðstöðu til innkaupa á tóbaki en kaupmenn, heldur skifta við sömu heildsöluhús og þeir erlendis. Þetta skiftir ekki miklu máli, því að vitanlegt er, að ríkið þarf ekki að standa að baki einstökum mönnum með að ná í haldkvæm sambönd erlendis frá fyrstu hendi. En það er annað, sem meira máli skiftir, og það er það, að heildsala sú, sem verið hefir á þessum vörutegundum hjer, hverfi undir ríkið og ágóði hennar í ríkissjóð. Fáir heildsalar og margir smásalar hafa notið þessa hagnaðar undanfarið í ríkum mæli, það verður ekki dulið, en þarna á ríkið að taka sinn bróðurhluta, og getur það án þess að neytendum vörunnar verði tilfinnanlegt.
Þá mintist sami háttv. þm. (Jak. M.) á vexti þá, 5%, er jeg gerði ráð fyrir af rekstrarfje tóbaksverslunarinnar, og taldi þá langt of lága. Þetta má vel vera. Hvorugur okkar getur um það sagt, hvort vextir verða hærri eða lægri eftirleiðis. En verði verslun þessi rekin eins og hæstv. stj. gerir ráð fyrir, með varasjóðsfje landsverslunar, þá er sama hvort ríkið telur sjer vexti 1% hærri eða lægri.
Mjer kom dálítið á óvart hvað háttv. sami þm. (Jak. M.) lagði mikla áherslu á, að þessi 45% álagning á vindla, sem jeg nefndi, og þó í öðru sambandi, væri óheyrilega mikil og fjarri öllum sanni. Jeg ætla nú að benda honum á, að þetta hlýtur að vera á einhverjum misskilningi bygt hjá honum, einkum þegar litið er á álagning þá, sem verið hefir á munntóbaki og neftóbaki núna síðari árin, eða 1919 og 1920. Það mun láta nærri, að tóbak hafi kostað 4 kr. kg. í innkaupi, og verður það með tolli 8 kr., en meðalútsöluverð mun hafa verið um 20 kr. á kg. Þarna verður því, ef hann vildi athuga það, nálægt 150%, og er þá ekki með sanngirni hægt að segja að langt sje farið, þegar gert er ráð fyrir 45% álagning á vindla og vindlinga í heildsölu ríkisins, og það á verð vörunnar, kominnar í hús hjer á landi, en án tollsins.
Að öðru leyti get jeg leitt hjá mjer annað það, er hann hafði að athuga við ræðu mína; því er, eins og jeg hefi tekið fram, að mestu leyti svarað af öðrum.
En jeg ætla að skjóta hjer inn í einu atriði, sem svari við aðfinslum hæstv. fjrh. (M. G.). Það er rjett hjá honum, að fallið hefir niður í brtt. nefndarinnar dálítil athugasemd, þar sem á að standa: með ráði landlknis, að því er kemur til áfengissölu. Þessi setning hefir fallið aftan af, og var ekki athugað, fyr en prentuninni var lokið. En þetta má auðveldlega leiðrjetta, áður en frv. þetta verður prentað næst.
Þá vil jeg víkja máli mínu til háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) og fyrirspurnum þeim, er hann beindi til mín, viðvíkjandi brensluvínandanum: hvort þessir 20 þús. lítrar, sem jeg gerði ráð fyrir að lagt yrði á, væru bæði til iðnaðar og brenslu.
Jeg tók það fram, að jeg sæi mjer ekki fært að gera glögga áætlun í þessu efni, af því að hjer liggja engar skýrslur fyrir, er greina í sundur vínanda til lyfja annars vegar og hitt, sem til iðnaðar fer. En mjer þykir trúlegt, að þetta sje of lágt áætlað, og get því fallist á, samkvæmt skýrslu hæstv. fjrh. (M. G.), að tala þessi muni hækka, og þá um leið tekjurnar líka. En vitanlega geri jeg ekki ráð fyrir sömu álagningu á hvorttveggja, vínanda, sem er ómengaður talinn, og brensluvínanda.
Um tollhækkun í stað einkasölu, sem háttv. sami þm. (J. Þ.) lagði svo mikið upp úr og áleit ábyggilegri fyrir ríkissjóð en einkasölu og líklegri til að gefa honum drýgri tekjur, þarf jeg ekki að svara, þar sem háttv. þm. Ak. (M. K.) hefir hrakið þær fjarstæður allar. En jeg get auðvitað tekið í sama strenginn, og gefið þá yfirlýsingu, eins og hann, að jeg mun greiða atkvæði móti tollhækkuninni, og jeg get bætt því við, að jeg geri það líka vegna þess, að jeg þykist vita, að eftir því sem tollarnir eru hækkaðir, því hættara er við tollsvikunum, en fyrir þau er girt með ríkiseinkasölunni, svo sem fært er.
Sami háttv. þm. (J. Þ.) fann að kostnaðaráætlun minni við rekstur þessarar verslunar, taldi hana altof lága og vildi að minsta kosti tvöfalda hana. Það þýðir ekkert að deila um þetta, enda liggur það ekki fyrir að ákveða neitt um það. Nefndin hefir að eins gengið út frá því, að verslun þessa eigi að reka á sem allra einfaldastan hátt og með sem minstum kostnaði. Að það þurfi að kosta 50 þús. kr. á ári, finst mjer fjarri öllum sanni; enda veit jeg ekki, við hvað hann getur miðað það, nema þá ef vera skyldi t. d. móvinslufyrirtæki hjer í Reykjavík eða önnur braskfyrirtæki bæjarins, þar sem alt ríður um þverbak. Hann fann líka að því, að hjer væri verið að fjölga starfsmönnum um þörf fram, og lögfesta embætti handa verslunarmönnum, sem sæu sjer best farborða sjálfir. En honum gleymdist það, að um leið og ríkið tekur einkasöluna í sínar hendur, ættu úr sögunni að hverfa heildsalarnir, sem hingað til hafa verslað með þessar vörur.
Jeg skal svo ekki að óþörfu lengja umræðurnar. Vil þó minna á það, út af ummælum hv. 1. þm. Rang. (Gunn. S.), að jeg sje ekki ástæðu til að fresta málinu vegna þess, að þörf sje á að bera það undir kjósendur. Jeg held, að það sje fyrir fram vitað, að þorri kjósenda í landinu muni styðja þessa stefnu yfirleitt og fagna henni.