04.04.1921
Neðri deild: 34. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 333 í B-deild Alþingistíðinda. (549)
6. mál, einkasala á tóbaki
Frsm. meiri hl. (Sveinn Ólafsson):
Það er nú búið að taka nær því alt fram, sem jeg vildi hafa sagt. Þó var það ein setning, sem hraut af vörum háttv. 1. þm. Reykv. (Jak. M.), sem jeg vildi minnast dálítið á. Hann var að tala um lögmál hinnar frjálsu samkepni og sagði, að verðlagið miðaðist við það í hvert sinn, hvað kaupandi vildi greiða fyrir vöruna eða fyrir hversu mikið verð væri hægt að koma vörunni út. Það getur nú verið mikið satt í þessu hjá honum, en jeg vil um leið benda honum á annað lögmál hinnar frjálsu samkepni, og það hljóðar svo: Þegar fleiri eru orðnir um að selja einhverja vörutegund heldur en samsvari kaupendafjöldanum, eða framboð á henni meira en eftirspurn, þá lýsir hin frjálsa samkepni sjer í því, að seljendurnir mynda samtök sín á milli, til þess að halda verðinu uppi. Er þetta lögmál hinnar frjálsu samkepni engu ómerkara en hitt, og eigi síður athugavert fyrir þjóðfjelagið.