06.04.1921
Neðri deild: 36. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 345 í B-deild Alþingistíðinda. (557)

6. mál, einkasala á tóbaki

Forseti (B. Sv.):

Jeg heyrði ekki gjörla hversu háttv. þm. Dala. (B. J.) ávarpaði háttv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.), en heyrðist svo sem hann nefndi bann þingsvein. Ef svo hefir verið, þá vil jeg vekja athygli háttv. þm. Dala. (B. J.) á því, að þetta er ekki rjett ávarp, samkvæmt þingsköpunum. (R. J.: Víst nefndi jeg manninn þingsvein, en sveinn er maður, og þingsveinn er þá sama og þingmaður). Þetta er orðaleikur, sem óátalið mundi, þótt leikinn væri einu sinni í glettingum, en hitt gegnir engu, að gera slík ávörp að þingvenju.