07.04.1921
Efri deild: 37. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 363 í B-deild Alþingistíðinda. (572)
6. mál, einkasala á tóbaki
Fjármálaráðherra (M. G.):
Háttv. 2. landsk. þm. (S. E.) hefir nú látið uppi skoðun sína á þessu frv., og kemur hún mjer reyndar ekki á óvart, en jeg vil benda honum á það, að jeg var meira „loyal“ gagnvart honum, þegar jeg var formaður fjhn. í Nd. og hann fjármálaráðherra, heldur en hann reynist mjer nú. En um þetta skal jeg ekki fást.
Háttv. 2. landsk. (S. E.) segir, að þær muni reynast litlar tekjurnar af þessu frv., þótt fram gangi, en jeg get ekki gengið inn á það. Það hefir sýnt sig, að það er hægt að græða á slíkum verslunum, og jeg er í engum vafa um, að það er ekki síður hægt, þótt reksturinn sje í stórum stíl.
Og það er ekki hægt að segja annað en að flest sje til tínt, þegar það er talið til foráttu frv., að stjórnin geti ekki útvegað sjer húsnæði til að geyma tóbak, eins vel og tóbakssalar nú. (S. E.: Það er hægt, en það kostar peninga). Vitaskuld, en það kostar líka peninga hjá þeim, sem nú versla með þessa vöru.
Þá talaði háttv. 2. landsk. (S. E.) um það, hve illa gæti farið, ef valið á verslunarstjóranum mistækist. En jeg tel víst, að það yrði ávalt hægt að losna við þann mann, ef svo færi, og ætti það því tæplega að geta orðið mikill hængur á þessu máli. Það er auðsjeð á annari eins röksemdaleiðslu og þessari, að hjer er ekki að ræða um mótstöðu gegn þessari stefnu, heldur er það „pólitík“, sem skaut nú upp höfðinu hjá andstæðing stjórnarinnar. — Það leiðir vitanlega ekki til neinna aukinna fjárgreiðslna erlendis, þótt landsstjórnin taki að sjer þessa verslun og komi þar í stað kaupmanna.
Þá mintist háttv. þm. (S. E.) á bannhlið málsins, í sambandi við drykkjurút, er hann kveðst hafa sjeð. En þar er jeg hræddur um, að háttv. þm. (S. E.) hafi yfirsjest í ályktun sinni, því að mjer finst líklegast, að maðurinn hafi fremur verið að drekka minni háttv. þm. (S. E.) en stjórnarinnar, úr því að hann sýndi honum flöskuna, en henni ekki.
Háttv. þm. (S. E.) vildi að áfengi væri talið til lyfja og látið fylgja frv. um einkasölu þeirra. Það sem vakti fyrir mjer í þessu efni, var það, að áfengi er sumpart notað til lyfja, sumpart til eldsneytis og sumpart til iðnaðar. Það er því alls ekki rjett að telja það alt meðal lyfja. Auk þess sje jeg ekki betur en að það ætti að vera styrkur fyrir bannmenn, að stjórnin tæki alla vínpöntun í sínar hendur. Annars vissi jeg ekki um lyfjafrv., þá er þetta frv. var í undirbúningi.
Það er annars fjarri því, að hægt sje að bera þessa einkasölu saman við einokunina gömlu, eins og sumir eru svo oft að stagast á. Þetta á ekki í neinu sammerkt við hana. Hún var til orðin fyrir kúgun erlendra ríkja, en sú einkasala, sem hjer er um að ræða, er til orðin af fúsum vilja landsmanna sjálfra.
Annars álít jeg, að ekki sje ástæða til að fara frekar út í þetta frv. nú, en jeg vil að eins að lokum endurtaka það, að ef jeg hefði verið form. fjhn., þá hefði jeg ekki talið rjett að standa upp og andmæla frv. á þessu stigi málsins.