07.04.1921
Efri deild: 37. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 367 í B-deild Alþingistíðinda. (575)

6. mál, einkasala á tóbaki

Fjármálaráðherra (M. G.):

Jeg þarf ekki að vera langorður, því að háttv. 2. landsk. þm. (S. E.) hefir ekki í ræðu sinni farið neitt inn á efni málsins, en var að tala eitthvað um hrossakaup og húsbygging við Geysi, og ætla jeg ekki að svara því. Eitthvað mintist þó háttv. þm. (S. E.) á, að reisa þyrfti stórhýsi til að geyma í tóbakið, og þann kostnað, sem því fylgdi. Jeg sje nú ekki betur en að möguleikar ættu að vera á því að fá hús leigð til þessa, engu síður en handa landsverslun öll stríðsárin og hingað til.