13.04.1921
Efri deild: 42. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 375 í B-deild Alþingistíðinda. (581)
6. mál, einkasala á tóbaki
Frsm. minni hl. (Björn Kristjánsson):
Það eru að eins örfá orð. Frsm. meiri hl. (S. F.) taldi það óvarlegt að hækka toll á tóbaki, og gekk út frá því, að þeim tekjum væri hægt að ná með einkasölu. En hjer er eins að gæta, að við einkasölu mundi varan hækka að mun. Því er nú svo farið, að flestir stærri kaupmenn fá vöruna beint frá verksmiðjunum, milliliðalaust, og legðist þá þannig á vöruna 15–20% í aukakostnað.
Það er fátt, sem jeg kæri mig um að svara hæstv. fjrh. (M. G.) Hann talaði um „monopol“-lönd. Reyndar hafði jeg sjálfur minst á þau, í því sambandi, að ekki væri ástæða fyrir okkur að elta þau. Við erum fámennir, og aðstaðan er alt öðruvísi hjá okkur en annarsstaðar. Hann sagði, að það hefði verið borið undir fjölda marga þingmálafundi. Í mínu kjördæmi var það borið undir 4 fundi, á þann hátt, sem hann sjálfur talaði um, og vildi enginn þeirra ríkiseinokun, og kom það ljóst fram á öllum fundunum. Þetta hefir ekki reynst svo einungis í ár, heldur og á fundum undanfarandi ára, þegar á það mál hefir verið minst. Jeg get því miður ekki sagt um, hve víða slíkt hefir átt sjer stað, því að jeg hefi ekki lesið þingmálafundargerðirnar, en jeg get ímyndað mjer, að það sje víðar, því að í mínu kjördæmi var engin „agitation“ á móti, og kom álit manna því frjálst fram.
Hæstv. fjrh. (M. G.) er bjartsýnni en jeg, þar sem hann heldur, að hægt sje að fá hæfa menn í þessar stöður. En við erum fátækir að mönnum og höfum ekki þekkingu á verslun, því að við höfum einungis verslað í 67 ár, og þar að auki óttast jeg, að slíkar stöður verði veittar í pólitísku augnamiði, fremur en með tilliti til hæfileika mannsins. Það er rjett, sem hann sagði um það, að stjórnin hefði heimild til að láta endurskoða eftir því, sem hún vildi, en jafnvíst er það, að alveg er vanrækt að nota þá heimild. Þar ber raun vitni, því að aldrei hefir verið litið eftir þeirri stofnun, sem nú er rekin af landsins hálfu. Um rekstrarkostnaðinn skal jeg ekki deila. Um það er ekki hægt að segja með vissu, hvorki af eða á, en jeg er hræddur um, að hann mundi verða meiri, eins og við allan opinberan rekstur, heldur en hjá kaupmönnum, sem einungis draga að sjer smátt og smátt, eftir þörfum. Jeg hefi svo ekki meira um þetta að segja. Jeg tek það fram, að jeg er andstæður þessari einokun, af því að jeg er á móti einokun yfirleitt, en þetta er einn hlekkur í einokunarkeðjunni.