13.04.1921
Efri deild: 42. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 377 í B-deild Alþingistíðinda. (584)

6. mál, einkasala á tóbaki

Fjármálaráðherra (M. G.):

Háttv. frsm. minni hl. (B. K.) óttaðist það mjög, eftir orðum hans að dæma, að forstaða þessarar tóbaksverslunar mundi verða gerð að pólitískum bita, en við það get jeg ekki verið hræddur, jafnvel þótt jeg viðurkenni möguleikann á, að stjórn kunni að misbrúka stöðu sína. En ef ekki er gerlegt að leggja út í fyrirtæki, sem fyrirsjáanlega mun borga sig, einungis fyrir þá sök, að komið gæti fyrir, að forstaða þess yrði veitt manni af pólitiskum ástæðum, þá held jeg að fátt sje gerlegt. Og jeg er ekki minstu vitund hræddur við þetta fyrir mitt leyti. Hins vegar býst jeg ekki við, að háttv. þm. (B. K.) hafi meint þetta til mín.

Gagnvart ummælum háttv. þm. (B. K.) um, að við kynnum ekki að versla, þá vil jeg halda því fram, að við kunnum það, en ef svo væri ekki, þá væri einmitt sjálfsagt að taka upp algerða einokun. (B. K.: Erum að læra það, en það er ekki fullært).

Háttv. þm. (B. K.) sagði, að þetta einkasölufrv. væri liður úr einokunarkeðju, sem stjórnin vildi koma á, en því neita jeg ákveðið. Þetta frv. er einungis komið fram til þess að afla landinu tekna. Lyfjasölufrv. er flutt að tilhlutun landlæknis, einungis frá heilbrigðislegu sjónarmiði, en kornvörufrv. til þess að tryggja landbúnaðinn. Þetta einokunarhjal er því draugur, sem hjer með er algerlega kveðinn niður.

Fyrirspurn háttv. þm. Sunnmýlinga (S. H. K.) mun jeg reyna að svara við 3. umræðu.