13.04.1921
Efri deild: 42. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 382 í B-deild Alþingistíðinda. (588)
6. mál, einkasala á tóbaki
Sigurður Hjörleifsson Kvaran:
Jeg get verið þakklátur hæstv. fjrh. (M. G.) fyrir hans góðu undirtektir að koma með verulega rekstrar- og stofnkostnaðaráætlun til 3. umr. Það er engu síður þörf á þeim áætlunum en tekjuáætlun.
Þá er og annað, sem mjer finst mönnum hafa láðst að minnast á hjer, en það er kaup forstjóra verslunarinnar. Að jafnaði, þegar ræða er um skipun manns í einhvern starfa, verður háttv. þm. skrafdrjúgt um þetta atriði, og furðar mig því stórum á því, er hjer þykir ekki hlýða að gera svo mikið sem minnast á það. Yfirleitt þykir mjer hjer vera stór brestur á, um áætlun stofns- og rekstrarkostnaðar þessa fyrirtækis. Get jeg ekki verið þakklátur háttv. frsm. meiri hl. (S. F.) fyrir afrek nefndarinnar í þeim efnum. Jeg tel það mjög æskilegt, að meiri hl. nefndarinnar gerði sjálfstæða kostnaðaráætlun um þetta mál, svo hægt verði að skoða það frá sem flestum sjónarmiðum. Er sjerstök ástæða til að óska þess, að háttv. meiri hl. geri nánar grein fyrir þessu máli, úr því sá nefndarhlutinn ræður háttv. deild til að ganga að þessu. Það er ekki eins mikil ástæða til þess, að minni hl. geri þetta, en þó væri það einnig æskilegt.
Þó að hjer liggi fyrir nokkrar tölur frá stjórninni, þá er ekki hægt að byggja mikið á þeim, þar sem alt er hjer enn í graut, og tóbaksverslunin í sambandi við áfengisverslunina. Að mínu áliti hefir því engin fullnægjandi greinargerð komið hjer fram ennþá.