15.02.1921
Sameinað þing: 1. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 17 í B-deild Alþingistíðinda. (6)
Rannsókn kjörbréfa
Frsm. 2. kjörbrjefadeildar (Karl Einarsson):
Það var samþ. í þeirri deild, sem jeg mæli fyrir, að taka kosningu háttv. 2. þm. Reykv. (J. B.) gilda. Sumir vildu að vísu fresta úrskurði um kosninguna. aðrir vildu ógilda hana, en það varð ofan á að taka hana gilda. Jeg þarf ekki að færa rök fyrir þessu. Það hefir háttv. þm. N.-Ísf. (S. St.) gert, og vísa jeg til orða hans.