05.03.1921
Neðri deild: 15. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 417 í B-deild Alþingistíðinda. (620)

47. mál, tollalög

Magnús Pjetursson:

Jeg hefi setið hjá og hlustað á umræðurnar um þetta frv. við 2. umr. málsins. En nú get jeg ekki lengur orða bundist, þegar jeg sje, með hve miklum flýti á að hraða þessu máli gegnum deildina, sem raun er á orðin.

Jeg get ekki skilið það hjá háttv. fjhn., hvers vegna hún er að slíta þetta frv. út úr þeirri keðju, sem skattafrv. stjórnarinnar mynda, og hraða því svo gegnum deildina, án þess að deildarmenn geti fengið yfirlit yfir skattafrv., og án þess þeir geti gert sjer í hugarlund, hvernig hinum frv. reiðir af. Mjer finst, að hún hefði átt að sleppa að koma með þetta frv., fyr en deildarmönnum er kunnugt um tillögur nefndarinnar um hin frv.

Jeg hefði kunnað betur við, að nefndin hefði hagað sjer eins og hæstv. stjórn, er, eftir því sem hæstv. fjrh. (M. G.) hefir sagt, hafði samið þetta frv. síðast, og því ætti að skoðast sem nokkurskonar viðbót eða uppfylling á hinum skattafrv. Jeg hefði því viljað, að nefndin hefði haft sömu aðferð og hæstv. stjórn. Jeg get gert mjer í hugarlund, að ýmsir háttv. deildarmenn mundu hafa komið með brtt. við þetta frv., ef því hefði ekki verið hraðað svona.

Háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) vakti máls á því við 2. umr., að það væri ekki gott að taka afstöðu til þessa frv., fyr en útsjeð væri um, hvernig frv. stjórnarinnar um tóbakseinkasölu reiddi af hjer í þinginu, og ef það fengi ekki framgang, þá gæti jeg hugsað, að einhverjir háttv. deildarmenn vildu hrófla við þessu frv.

Það getur vel verið, að jeg hefði komið með brtt. við frv., hefði það ekki verið drifið svona fljótt á dagskrá. En úr því það er komið á dagskrá, þá er of seint að koma fram með brtt.

Jeg vil taka það fram, til að fyrirbyggja allan misskilning, að það er ekki meining mín, að jeg muni andmæla frv. í heild sinni eða einstökum greinum þess að þessu sinni. En jeg vildi skjóta því til hæstv. forseta deildarinnar (B. Sv.), hvort hann vildi ekki taka málið af dagskrá, og hugsa jeg, að fleiri háttv. deildarmenn muni einnig æskja þess. Jeg skildi ekki, hvers vegna frv. væri flýtt svona, og hvers vegna gert er ráð fyrir, að lögin gangi strax í gildi, nema ef svo væri, að stjórnin ætlaði sjer að ná strax í þann tekjuauka, sem frv. gerir ráð fyrir. En ef svo er, þá get jeg ekki betur sjeð en að þetta sje ein hringavitleysa. Jeg veit ekki, hvernig á að taka toll af þeim vörum, sem bannað er að flytja inn í landið, nema stjórnin ætli að hætta við viðskiftahöftin og afnema við skiftanefndina, en annars hjelt jeg, að hún mundi halda í hana meðan þingið leyfir. En eins og nú stendur á, held jeg því að þessu frv. liggi ekkert á.

Jeg ætla svo ekki að fjölyrða um þetta frv., en jeg get ekki talið það sanngjarnt að flýta frv. svona, og þvinga þar með deildina til að afgreiða það, nema ef það væri af hræðslu við það, að einkasölufrv. hlekkist á, og eigi því með þessu að binda þingmenn og láta þá ekki eiga annars úrkosta en að samþ. það frv.