05.03.1921
Neðri deild: 15. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 430 í B-deild Alþingistíðinda. (626)

47. mál, tollalög

Fjármálaráðherra (M. G.):

Þegar jeg í ræðu minni áðan mintist á, að tollvörur gætu verið á leiðinni til landsins, átti jeg við vörur, sem þegar væri búið að veita innflutningsleyfi á. Slíkt leyfi verður ekki tekið aftur, því að auðvitað hefir það á sínum tíma verið veitt af því, að varanna þurfti með.

Það hefði verið vel hægt fyrir háttv. þm. Str. (M. P.) og 3. þm. Reykv. (J. Þ.) að koma með brtt. við frv. nú við þessa umr. um hækkun á tóbakstollinum, og láta samþykt eða höfnun þeirra brtt. skera úr áliti deildarinnar um tóbakseinkasölufrv. Jeg hefi áður gert grein fyrir því, að það væri ekkert ósamræmi í því að tolla og hafa einkasölu á vörum, og sje ekki ástæðu til að taka það upp hjer aftur.

Út af því, að háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) sagði, að jeg hefði ætlað að bregða fæti fyrir frestun þessa máls, þá er það misskilningur. Það var aldrei ætlun mín. Og einmitt þess vegna talaði jeg við einn úr fjhn. um þetta. Annars er það hægast fyrir háttv. þm. (J. Þ.), vilji hann vita álit fjárhagsnefndar, að fá að vita hjá sessunaut sínum, sem er í fjárhagsnefnd, hvað gerst hafi á fundi nefndarinnar í gærkveldi. Jeg vil sem minst fara út í einkasölufrv. Þau liggja alls ekki fyrir sem stendur, en mjer virðist jeg alls ekki hafa mist tök á frv., þótt það fari út úr þessari háttv. deild, þar sem jeg ávalt get komið með brtt. í háttv. Ed., en svo er auðvitað ekki um aðra þm. þessarar deildar.

Jeg verð annars að segja, að jeg er alveg ófáanlegur til að fara að skýra frá því, hvað jeg ætli að gera, ef þetta og þetta frv. fellur. Jeg verð fyrst að sjá, hvort það fellur. Bæði háttv. þm. Str. (M. P.) og háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) lýstu því yfir í fyrradag, að þeir væru samþykkir þessu frv. (M. P.: Ekki jeg!). Hv. þm. Str. (M. P.) greiddi því þó atkvæði sitt, sem er nokkuð það sama, og ef þessir háttv. þm. nú greiða atkv. á móti frv., þá hygg jeg, að þeir verði ekki margir, sem fylgja þeim í því.