22.02.1921
Neðri deild: 6. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 444 í B-deild Alþingistíðinda. (651)

37. mál, varnir gegn berklaveiki

Magnús Pjetursson:

Jeg vil þakka hæstv. forsrh. (J. M.) fyrir ágæta framsögu í þessu máli. Mig furðar hversu hann hefir á stuttum tíma getað sett sig rækilega inn í málið, og hve ágætum skilningi framsaga hans lýsir. Jeg hefi engu við þá framsögu að bæta. En jeg vil skjóta því til væntanlegrar nefndar, að mig fýsir sem fyrst að vita, hvort hin háttv. nefnd hygst að flytja fram frumvörpin eða ekki. Ef nefndin hygst ekki að flytja þau, mun jeg taka að mjer flutninginn.

Jeg býst við, að bæði nefnd og þingi hrjósi hugur við þeim kostnaði, sem af samþykt þessara frv. leiðir. Vil jeg síst láta svo sýnast, sem nefndin hafi viljað draga fjöður yfir þann tilkostnað, og því geta þess, að ef allar tillögur berklaveikisnefndarinnar verða teknar til greina, þá bætast við fleiri útgjöld en þau, sem um er getið í frv. þessum.

Menn tala nú mikið um sparnað, og er það að vonum, og það er gott að spara. En oft hefir þó svo farið, bæði fyrir þjóð og þingi, að þau hafa kastað krónunni til þess að spara eyririnn.

Og í þessum frv. er að ræða um sparnað þess, sem dýrmætast er — sparnað á mannslífum. Jeg vona því, að hv. Alþingi horfi ekki í eyririnn, þegar um það er að ræða að reyna að koma í veg fyrir manndauða.