20.04.1921
Neðri deild: 48. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 485 í B-deild Alþingistíðinda. (685)

37. mál, varnir gegn berklaveiki

Þorsteinn Jónsson:

Það var út af brtt. á þskj. 169, að jeg vildi gera stutta athugasemd. Framsögumaður (M. P.) var búinn að svara háttvirtum flm. brtt. (J. S.), en honum sást yfir eitt atriði, sem jeg því vildi minnast á. Jeg lít svo á, að aðalástæðan fyrir því, að berklaveikisnefndin hefir ætlast til þess, að yfirsetukonur og kennarar fengju biðlaun í 2 ár, hafi verið sú, að þess er ekki krafist af neinum öðrum opinberum starfsmönnum, að þeir láti af störfum, ef þess verður vart, að þeir sjeu eitthvað sýktir af berklum. Þessi tillaga nefndarinnar er því rjettmæt og sjálfsögð. Háttv. 2. þm. Skagf. (J. S.) sagði, að engin ástæða væri til þess að ríkið gyldi þessi biðlaun, þar sem barnakennarar fái nú eftirlaun. Þessi umsögn er talsvert athugaverð, því að barnakennarar hafa nú alls engin eftirlaun. Það getur verið, að hv. þm. (J. S.) eigi við það, að ef lífeyrissjóðslög barnakennara verði samþykt, að þeir eigi þá rjett til styrks úr lífeyrissjóði. En barnakennarar mynda sjálfir lífeyrissjóðinn með því að gjalda í hann, en ekki ríkið.

Viðvíkjandi útreikningnum á því, sem sveitarfjelögin ættu að borga, þá er hann líka athugaverður. Háttv. þm. (J. S.) talaði um kennara, sem væru skólastjórar við heimavistarskóla. Það er nú ekki líklegt, að ríkið þurfi fyrst um sinn að borga mikið til slíkra manna, því að að því er jeg best veit, þá er alls enginn heimavistabarnaskóli til í landinu. Aðalatriði þessa máls er það, að fátækt knýi menn ekki til þess að dylja sjúkdóm sinn, en sjeu framtíðarhorfur slíkra manna mjög bágar, þá er hætt við því, að þeir reyni að dylja sjúkdóminn í lengstu lög.

Það áttu að vera ein höfuðmótmæli hjá hv. 2. þm. Skagf. (J. S.), að barnakennarar væru aðeins stuttan tíma við starf sitt. Það er rjett, að svo hefir verið hingað til í sveitum, en síðan lögin um laun barnakennara voru samþykt, er líklegt, að margir geri þennan starfa að æfistarfi sínu.