28.04.1921
Efri deild: 57. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 505 í B-deild Alþingistíðinda. (713)

21. mál, afstaða foreldra til óskilgetinna barna

Forsætisráðherra (J. M.):

Jeg vil leyfa mjer að mæla með því, að háttv. deild samþykki frv. þetta eins og það liggur fyrir, því að þær breytingar, sem gerðar hafa verið á því, eru svo smávægilegar, að undantekinni einni, að vel má við una.

Jeg vil þá minnast á brtt. nefndarinnar við 1. gr. Jeg hefi ráðfært mig við höfund laganna, Lárus H. Bjarnason hæstarjettardómara, og er hann alveg sammála mjer um það, sem jeg sagði í gær. Hann skaut því fram, að 2. gr. mætti fella niður, og færa hana aftur fyrir 36. gr., en þó álít jeg, að frv. eigi að fara eins og það er til háttv. Nd. En ef fyrsta grein ætti að standa, þá mætti bæta við hana eftirsetningu „nema skilgerð sjeu“.

Annars er bygt á því, að frv. um skilgetin börn nái fram að ganga, og vona jeg að svo verði.