01.04.1921
Neðri deild: 32. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 574 í B-deild Alþingistíðinda. (748)

30. mál, fjáraukalög 1920 og 1921

Frsm. samgnrn. (Þorsteinn Jónsson):

Vegna þeirra athugasemda, sem fram hafa komið í umræðunum um brtt. samgmn., verð jeg að segja nokkur orð.

Háttv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) kvað samgöngumálanefnd sýna Eimskipafjelagi Íslands meiri hugulsemi heldur en einstökum landshlutum, þeim, er samgangnanna þyrftu með.

Jeg vil taka það fram, sem ætti þó ekki að þurfa, að það var ekki vegna Eimskipafjelagsins, að nefndin lagði til, að þessar 60 þús. kr. væru veittar til Goðafossferðanna, heldur vegna þess, að nefndin vildi tryggja það, að Goðafoss kæmi á sem flestar hafnir á Norður- og Austurlandi. Ef hann fengi engan styrk, þá mundi hann aðeins sigla á stærstu og bestu hafnirnar. Skipið mundi ekki missa mikinn flutning fyrir það, því að samkeppni frá öðrum fjelögum yrði ekki um að ræða.

Styrkurinn er veittur með því skilyrði, að Goðafoss sigli á sem flestar hafnir norðanlands og austan, og eftir áætlun. Og eftir því, sem jeg veit, munu hafnirnar vera áætlaðar 18, og þar af 16 fyrir norðan og austan.

Háttv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) gat þess, að Goðafoss mundi ekki sigla sunnar en á Fáskrúðsfjörð. En útgerðarstjóri Eimskipafjelagsins hefir lofað því að láta Goðafoss sigla á Djúpavog, ef flutningur fengist og aðrar ástæður leyfðu. Háttv. þm. (Sv. Ó.) gat þess, að vart mundi fást svo mikill flutningur, að talin yrði ástæða til að fara þangað. En jeg verð að segja, að ef Goðafoss fær ekki nokkrar vörur til að flytja þangað, þá á hann lítið erindi þangað. En jeg hugsa þó, að þeir þurfi á vörum að halda þar eins og annarsstaðar, og mun því skipið sigla þangað. Sami þm. (Sv. Ó.) taldi minni not að þessum ferðum en flóabátum. Jeg tók það fram í framsöguræðu minni í gær, að þörf væri á flóabátum, þó að þessar ferðir væru farnar, en jeg taldi það meiri skaða að missa þessar ferðir heldur en flóabátaferðirnar.

Og eins og jeg tók fram, þá veldur það miklum kostnaði, að millilandaskipin koma ekki á sem flestar hafnir, og sá kostnaður verður afskaplega tilfinnanlegur, þegar þarf að borga 2–3-föld flutningsgjöld. Með þessum Goðafossferðum yrði sparað þetta tvöfalda flutningsgjald, sem legst á vörurnar, eftir að þær koma frá útlöndum, og það var höfuðatriðið fyrir nefndinni. Þessar ferðir geta vitaskuld ekki bætt úr þörfunum með flutning á fólki og vörum milli smáhafna, og væri því, ef þingið sæi sjer fært, æskilegast að fá flóabátaferðir líka.

Jeg skal svo minnast á það, sem háttv. þm. (Sv. Ó.) sagði, að styrkur sá, sem ætlaður hefði verið Þorsteini Jónssyni, hafi verið veittur Eimskipafjelagi Suðurlands. Þetta er misskilningur. Skip Þorsteins átti að ganga til Norður- og Austurlands, og Sterling var látin taka þær ferðir. Það voru 170 þús. kr., sem veittar voru í fjárlögunum og áttu að ganga til Sterlings og Suðurlands, en stjórnin hafði óbundnar hendur um, hvernig hún skifti þeim, og skiftin voru þannig, að hæstv. stjórn ljet Suðurland hafa meginhlutann, eða 125 þús. kr.

Háttv þm. Barð. (H. K.) var að tala um, að lítt hefði verið hugsað um ferðir um Vesturland. En eftir upplýsingum, sem samgmn. hefir fengið, mun enginn landshluti vera betur settur en þessi um ferðir.

Eins og jeg tók fram, þá var ekki hægt að breyta áætlun Suðurlands, úr því, sem komið var. Stjórnin hafði bundið hana svo föstum skorðum, að engu varð um þokað, nema borga ærna peninga fyrir, þó að Suðurlandsfjelagið hefði engan halla af því, að breytt yrði áætlun skipsins. Háttv. þm. (H. K.) sagði, að engin millilandaskip kæmu á hafnir á Vesturlandi. Þetta segir háttv. þm. (H. K.) af því, að hann hefir ekki tekið eftir því, sem jeg sagði í framsöguræðu minni í gær. En eins og jeg tók fram, þá á Gullfoss að sigla til Vesturlandsins, en jeg veit ekki. á hvað margar hafnir. eða hvort það verður eftir áætlun. En eftir því, sem orð fjellu hjá framkvæmdastjóra Eimskipafjelags Íslands, í viðtali við samgmn., þá mun Gullfoss verða látinn sinna þeim ferðum, eftir því, sem þörf krefur. — Þar sem lagt hefir verið til, að mb. Svan yrði veitt 3000 kr. uppbót á styrk, þá á jeg örðugt með að skilja, að þessi háttv. þm. (H. K.) skuli tala móti því. Sú röksemd hans, að mátt hefði fá ódýrari bát hjer í Reykjavík til Breiðafjarðarflutninga í vetur, er á engu bygð, því að það var reynt, en það var ekki hægt að fá annan bát til þessara ferða en Svan, samkvæmt því, sem tekið er fram í nál. samvinnunefndar samgöngumálanna. Stjórnin var búin að gefa vilyrði fyrir því að vera því meðmælt, að báturinn fengi þennan viðbótarstyrk, ef hann tæki að sjer ferðirnar, og það er næsta einkennilegt, að þingmaður frá Breiðafirði skuli tala á móti þessum styrk.

Mjer skildist á ræðu hæstv. fjrh. (M. G.), að hann væri á móti því, að brtt. nefndarinnar væru samþyktar, vegna þess, að ef þær yrðu samþyktar, þá yrðu strandferðir dýrari þetta ár en síðastliðið ár. En þetta er ekki rjett. Því að ef tekið er tillit til þess, að styrkurinn til Eimskipafjelags Íslands verði veittur, þá fellur niður 45 þús. kr. styrkur til flóabáta. Svo er annar póstur, sem mun verða að miklum mun lægri. Það er hallinn á ferðum Sterlings, þar sem kol eru fallin mikið í verði.

Jeg hefi ráðið það af svörum hæstv. atvrh. (P. J.), að ástæðan til þess, að samið var við Eimskipafjelag Suðurlands í haust, hafi verið sú, að hægt yrði að semja þá þegar áætlun Sterlings fyrir næsta ár. Jeg hygg, að rjettara hefði verið að láta bíða að semja áætlun Sterlings en kaupa svo dýru verði þessar ferðir Suðurlands. Ekki síst, þar sem stjórninni var fullkunnugt um, að almenn óánægja var með skipið og að þingið mundi ekki fúst á að styrkja það með eins ríflegu fjárframlagi, sem hæstv. stjórn ljet það fá á síðastliðnu ári. Þá er það annað, sem virðist hafa verið næg ástæða fyrir hæstv. stjórn um frestun þessa máls, og það er, að þing kom svo snemma saman, að strandferðir voru ekki byrjaðar. Auk þess eru, eins og jeg hefi tekið fram, ferðir milli Reykjavíkur og Vesturlands meiri en milli annara landshluta og höfuðstaðarins. Hefði því verið æskilegast, að þessir samningar hefðu verið látnir bíða. En það má segja, að það þýði nú ekki að tala um slíkt, þar sem búið er að semja, en stjórnaraðgerðir sem þessa má þingið ekki láta óátaldar.

Eftir samtal við samgmn.-menn, þá verð jeg að telja varhugavert, að láta ekki brtt. á þskj. 181 koma til atkvgr. við þessa umr. Því að ef styrkurinn til Goðafoss verður feldur, þá er nauðsynlegt að fá þennan styrk. Það er ekki heppilegt, að flóabátur gangi aðeins milli Hornafjarðar og Seyðisfjarðar; hann þarf að ganga alla leið norður á Skála á Langanesi. Þegar Austfirðingar hætta útgerð á Hornafirði, flytja þeir sig eftir stutta dvöl að Skálum, til útgerðar þar. Hefir mjer því dottið í hug að koma með brtt. um þetta við 3. umr.

Viðvíkjandi brtt. fjvn. vil jeg taka það fram, að jeg get ekki greitt atkv. með veitingunni til stöðvarstjórans í Vestmannaeyjum. Jeg álít, að þingmenn sjeu ekki neinir dómarar í málum manna. Verði þessi till. samþ., þá álít jeg þingið vera komið inn á hættulega braut. Ef þingið kannast við, með því að samþ. þessa till., að því beri að bæta manninum þann órjett, sem hann þykist beittur, þá mun hann vitanlega halda áfram með fylstu kröfur, þar sem þingið hefir lögfest það, með samþ. þessarar fjárveitingar, að hann hafi verið órjetti beittur.

Þó að þess sje ekki þörf að verja gerðir fjvn., get jeg ekki látið vera að minnast á einn lið, sem mætt hefir talsverðum mótmælum hjer í deildinni. Jeg á við styrkinn til íslenskra námsmanna erlendis. Þessi styrkur er ekki hár, en hitt er að vísu satt, að við erum fátækir og lítils megandi, en þó er ein fátækt, sem bagar okkur meira en alt annað, og það er mannfátækt. Okkur vantar tilfinnanlega hæfa og mentaða menn í margar mikilsverðar stöður, og er því fje ekki illa varið, sem veitt er ungum og efnilegum námsmönnum, sem eru að búa sig undir vandasöm störf, er vort litla ríki þarfnast að sjeu unnin með viti og þekkingu. Jeg mun þess vegna greiða atkvæði með þessari fjárveitingu.