01.04.1921
Neðri deild: 32. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 578 í B-deild Alþingistíðinda. (749)

30. mál, fjáraukalög 1920 og 1921

Forseti (B. Sv.):

Út af fyrirspurn háttv. 1. þm. N.-M. (Þorst. J.) skal jeg geta þess, að hægt er að fresta atkvgr., ef þess er óskað, en það er ekki heimilt að koma með brtt. eftir að atkvgr. hefir farið fram við 3. umr. En það má ná sama takmarki, sem hjer er miðað að, með því að bera fram till. til vara, og býst jeg við, að það verði gert af þeim háttv. þm., sem hjer eiga hlut að máli.