02.04.1921
Neðri deild: 33. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 600 í B-deild Alþingistíðinda. (758)

30. mál, fjáraukalög 1920 og 1921

Sveinn Ólafsson:

Jeg er til neyddur að taka til máls. Annarsvegar hafa þeir vikið ýmsu að mjer, hv. frsm. fjvn. og samgmn. (M. P. og Þorst. J.). Hins vegar virðist nú í tvísýnu teflt fjárveitingu til flóabáta eystra og nyðra.

Jeg get gefið skjót svör við því, sem vikið var að mjer í gær. Hirði enda ekki mikið, þó að eitthvað falli undan.

Háttv. frsm. fjvn. (M. P.) segir, að jeg muni vera búinn að gleyma því, að jeg hafi áður verið í sjútvn., úr því jeg sje á móti því að styrkja fyrirlestrahald við Stýrimannaskólann með 300 kr. Það er alveg óþarfi að minna mig á þetta. Og það er ekkert annað en útúrsnúningur, að jeg vilji telja þessar krónur eftir. Jeg vil aðeins átelja það, að leitað er launa fyrir hvert smávik úr ríkissjóði, átelja þessa bitlingasýki. Það er ekki óalgengt, að menn haldi slíka fyrirlestra úti um sveitir landsins, og dettur þó fæstum í hug að leita verðlauna úr landssjóði fyrir. Það er þessi beiningamannshugsunarháttur, sem bólar svo mikið á hjer í höfuðstaðnum og nágrenni hans, að seilast í landssjóð eftir launum fyrir hvert smávik og gera aldrei í opinberar þarfir atvik án ærna gjalds.

Hv. þm. Dala (B. J.) talaði líka um þetta í dag, og virtist halda því fram, að án þessara fyrirlestra mundu nemendur Stýrimannaskólans ekki verða færir til að stýra skipi um höfin. Mjer er að vísu ókunnugt um efni þessara fyrirlestra, en jeg veit, að almenn sjómannafræði er kend við skólann, og býst við, að hún muni nægja til að gera nemendur færa um að stýra skipum um höfin, enda lítið lið í henni, ef svo væri ekki.

Hv. frsm. fjvn. (M. P.) gaf mjer olnbogaskot fyrir að vera á móti styrkveitingum til námsmannanna. Honum þótti óviðurkvæmilegt að kalla þá „vonarpeninga“. Jeg verð þó að halda fast við það, að orðið „vonarpeningur“ sje rjettilega notað í þessu sambandi hjá mjer, því að vissulega ber til beggja vona um gagnsemdina af námi þeirra fyrir þjóðfjelagið. Þeir hafa ekki allir horfið heim og unnið hjer, sem slíkra styrkja hafa notið, nje heldur allir unnið mikið gagn, þótt heim hafi komið. Sumir hafa farið vestur um haf, aðrir suður í lönd eða gerst nytjalitlir farfuglar. Jeg held, að hv. frsm. (M. P.) sje eins kunnugt og mjer um marga lækna, sem stokkið hafa úr landi að afloknu námi, vegna þess, að þeir þóttust ekki geta setið við sultarlaunin hjer, og styrk þjóðfjelagsins við þá, ekki afturkræfan. Annars mundi jeg ekki telja þessa hjálp eftir, ef efni væru til að veita hana. En þau efni eru ekki til. Margir hjálparþurfar fara á mis við alla hjálp, og knýjandi þörf um framkvæmd ýmsra mannvirkja, svo sem vita, brúa og vega, verður að sitja á hakanum. Háttv. þm. átelja það sjerstaklega, að vilja ekki styrkja menn til þess að ljúka námi. Jeg get alls ekki fallist á það, að meiri sanngirni sje í að veita þeim námsmanni styrk, sem áður hefir notið hans, eða er að ljúka námi sínu. heldur en þeim, sem er að byrja. Jeg álít, að sanngirniskrafa hins síðarnefnda sje, að öðru jöfnu, miklu ríkari. Það er fráleitt hjá hv. þm. Dala. (B. J.), að það sje sama og að fórna mönnunum, að neita þeim um þessa námsstyrki eða framhaldsstyrki. Líklega hafa þeir ekki við námið orðið ófærir til að vinna sjer brauð, eða þeim, námsins vegna, ofaukið í heiminum.

Jeg nefndi í gær, í þessu sambandi, menn, sem hafa brotist áfram af eigin ramleik og án alls styrks af opinberu fje, en eigi orðið hinum síðri. Og það er víst, að þeir menn, sem hafa einlægan vilja á að gagna föðurlandi sínu, þeir leita heim til þess aftur, að fengnum frama, engu síður þótt einskis styrks hafi notið af opinberu fje, — að því jeg held — oftast með meira manngildi en sumir, sem þágu.

Háttv. frsm. samgmn. (Þorst. J.) gaf í skyn, að ef styrkurinn til Goðafoss yrði ekki samþyktur, myndi hann ekki koma við á höfnum á Norður- eða Austurlandi. Þetta er alveg rangt, því að það segir sig sjálft, að úr því að skipinu eru ætlaðar ferðir milli útlanda og Norður- og Austurlands — og svo er löngu ráðgert — Þá hlýtur það eins að koma á hafnirnar, þótt styrklaust sje. Hitt er annað mál, að án styrksins yrðu þessar ferðir þess líklega síður eftir áætlun farnar, og sakaði lítið, ef flóaferðirnar væru í lagi. Skipið er alls ekki kjörið til flóaferða, og annast þær aldrei. Þess vegna er þessi styrkveiting sama og að kaupa kött í sekk, og hún er meðal annars óforsvaranleg fyrir þá skuld, að engin áætlun fyrir skipið hefir verið birt.

En þótt áætlun yrði birt, með nokkrum viðkomum á smáhöfnum. bundnum því skilyrði, að farmur væri nægur, þá mundi slíkt að litlu sem engu liði koma fyrir flestar hafnirnar austanlands. Þær myndu sjaldnast fullnægja kröfum fyrir jafnstórt skip um farm og farþegafjölda, og þess vegna fara alls á mis, því að landslagsins vegna og staðháttanna eru þessar hafnir, að mestu eða öllu, útilokaðar frá öllum samgöngum á landi.

Jeg vonast því eftir því, að fjárveitingin til Goðafoss verði ekki samþ.

Því miður var jeg fjarstaddur þegar háttv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) talaði, en eftir því, sem mjer hefir skilist á umræðunum, mun hann hafa gefið í skyn, að Goðafoss gæti ekki siglt eftir fastri áætlun, ef styrkurinn fjelli niður. Ef þetta er rjett, finst mjer þessi bending sannast að segja, koma úr hörðustu átt. Því að þetta yrði óhjákvæmilega til þess, að menn á þessum slóðum reyndu að tryggja sjer flutning annarsstaðar, og væri það illa farið, því að Eimskipafjelagið ætti að sitja fyrir flutningunum, og það án samkepni. ef það hagaði ferðunum eftir þörfum hjeraðanna og sýndi þeim nærgætni.

Annars hefir mjer rjett í þessu borist til eyrna, að kostur muni vera á flóabátsferðum milli Hornafjarðar og jafnvel Skála fyrir 30 þús. kr. En slíkar ferðir mundu eflaust verða þessum landshluta miklu notadrýgri en Goðafossferðirnar, og verð jeg því að vænta þess, að til 3. umr. komist einhver önnur sæmilegri skipun á um þessar samgöngur en orðið er.

Að lokum skal jeg svo geta eins atriðis enn, sem jeg mintist reyndar á í gær, en það er fjárveitingin til ekkju Matthíasar Jochumssonar. Jeg mun leyfa mjer að bera hjer fram skriflega brtt., þess efnis, að hún haldi jafnháum styrk og laun manns hennar voru, en án verðstuðulsuppbótar. Virðist mjer þá mjög vel til hennar gert, og henni sómi sýndur.