02.04.1921
Neðri deild: 33. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 617 í B-deild Alþingistíðinda. (765)

30. mál, fjáraukalög 1920 og 1921

Fjármálaráðherra (M. G.):

Það er ekki undarlegt, þótt jeg haldi uppi svörum fyrir stjórnina. Því að jeg mun eiga að borga þetta út, sem óttast er, að stöðvarstjórinn í Vestmannaeyjum fái. Ekki er það heldur undarlegt, þótt jeg haldi því fram, að þetta mál þurfi að rannsaka, þar sem tæplega er liðið meira en hálfur klukkutími síðan að það var fyrst kallað hneykslismál. Háttv. 1. þm. Reykv. (Jak. M.) hlýtur því að vita meira um þetta mál en jeg, fyrst hann getur dæmt það hneykslismál. Jeg vil því fá það athugað nánar. Út af því, að efasamt gæti verið, hvort stöðvarstjóri þessi ynni mál sem þetta fyrir rjetti, skal jeg taka það fram, að þó það ekki sannaðist, að hann ætti lagalega kröfu til fjebóta, heldur aðeins upplýstist, að hann ætti sanngirniskröfu til þeirra, umfram aðra starfsmenn ríkisins, þá tel jeg sjálfsagt að greiða þær.

Um eftirlaun Sigurðar Jónssonar fyrv. ráðherra er það að segja, að stjórnin er fús til að taka á sig alla ábyrgð út af þeim. Því að meiri hl. fjárhagsnefnda beggja deilda, og meiri hl. þingsins, var með því, að hann fengi þetta. Jeg er því í engum efa um, hvernig það mál fer.