03.05.1921
Neðri deild: 61. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2498 í B-deild Alþingistíðinda. (77)
Áskorun um kvöldfundi
Forseti (B. Sv.):
Þar sem þessi ósk er fram borin, um að flýta fyrir málum þessum, þá vona jeg, að þessi mikilvirka nefnd leggist ekki á málið, sem kallað er, og dragi ekki um skör fram að skila því frá sjer.