12.04.1921
Neðri deild: 41. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 632 í B-deild Alþingistíðinda. (774)
30. mál, fjáraukalög 1920 og 1921
Frsm. (Magnús Pjetursson):
Vinnubrögðum hjer á þingi er svo vísdómslega fyrir komið, að menn hafa ekki einu sinni tíma til að undirbúa framsöguræður. Þess vegna verð jeg að biðja háttv. deild að afsaka, þótt framsaga mín verði ekki eins góð og skyldi. Hv. þingdm. þykir ef til vill furðu sæta, að fjvn. kemur með fleiri brtt. við 3. umr. heldur en við 2. En þessu veldur, að sum erindin til nefndarinnar komu svo seint, að hún gat ekki fyrir aðra umr. verið búin að leita þeirra upplýsinga hjá stjórnarvöldum og öðrum, sem þurfa þóttu til þess, að hægt væri að taka þau til greina.
Jeg býst við, að brtt. fjvn. á þskj. 273 þyki hafa talsverðan útgjaldaauka í för með sjer. Þær munu neina samanlagðar um 150 þús. kr. En þess ber að geta, að 2. brtt. um að leiða rafmagn frá orkustöðinni við Elliðaárnar til Vífilsstaða. og 7. brtt„ um að leggja slitlag á gólf á opinberum byggingum, eru ótilteknar fjárveitingar, svo það má gera ráð fyrir, að útgjaldaauki brtt. á þskj. 273 muni nema á þriðja hundrað þús. kr.
Einnig vil jeg geta þess, út af því sem heyrst hefir, bæði utan þings og innan, að fjárlögin sjálf kæmu nú seint frá nefndinni, að svo er í rauninni ekki, og munu menn geta sjeð það nú, þegar fjáraukalögin eru komin. (S. St.: Ónei). Allshn. er heldur ekki búin. En drátturinn á fjárlögunum stafar af því, að það hefir aldrei verið, svo jeg viti, að nefndin hafi haft tvenn fjárlög í einu.
Skal jeg svo snúa mjer að einstökum brtt. og byrja á þskj. 273. 1. lið við 2. gr. En þar er farið fram á það að veita Guðm. Hannessyni á Siglufirði 2000 kr. launabætur fyrir 1920. Samkvæmt launalögunum frá 1919 er ekki gert ráð fyrir bæjarfógetaembætti á Siglufirði, og Guðm. Hannessyni því ætluð 2500 kr. byrjunarlaun. En þegar bæjarfógetaembættið var stofnað þar 1920, taldi stjórnin sig ekki hafa heimild til að borga meira en í lögunum stóð beinlínis. Hinsvegar finst nefndinni, að maðurinn eigi kröfu til launabóta, og stingur því upp á 2000 kr., þótt ekki sjeu það fullar bætur, og sumir nefndarmenn sjeu því óánægðir með það. Suma kann kannske að undra það, að hjer er aðeins talað um árið 1920, en svo stendur á því, að nefndin ætlar að bera fram brtt. við launalögin, þar sem þetta verði lagað, og á sama við um aðrar launabætur, sem jeg kem að síðar. Reyndar kom fram um þetta stjórnarfrv., en það kvað eiga að sofna í Ed., og var þó ekki um annað að ræða en sjálfsagða leiðrjettingu eða samræmingu á launalögunum.
Þá kem jeg að 2. lið, um að heimila stjórninni að veita fje til þess að leiða rafmagn úr Elliðaárstöðinni til Vífilsstaða. Það mál er þannig vaxið, að rafmagnstækin á Vífilsstöðum eru nú mjög úr sjer gengin, en rafmagn frá Reykjavíkurstöðinni mundi hins vegar verða mun ódýrara en það, sem framleitt yrði heima, með öllum þeim kostnaði, sem fylgir sjerstakri vjel og vjelgæslu þar. Það er gert ráð fyrir því, að þetta kosti um 65 þús. kr., og er þá gert ráð fyrir dynamo til straumbreytingar, svo að hægt verði að nota á hælinu Finsens-lampa, en þeir þola ekki þá spennu, sem Elliðaárleiðslan hefir. Sömuleiðis er gert ráð fyrir því að hafa þráðinn svo gildan, að Hafnfirðingar geti á sínum tíma notað leiðsluna, ef þeir vilja, þótt ekki sje fullráðið um það ennþá. En ef svo yrði, mundi dragast þar frá kostnaðinum, og sömuleiðis mætti selja gömlu Vífilsstaðatækin fyrir svo sem 10–12 þús. kr.
Annað mál, þessu skylt, er það, sem ræðir um í 2. lið b., sem sje um 18 þús. kr. handa Röntgenstofunni til rafmagnslampa og Finsens-lampa. Stofan hefir haft rafmagn úr stöð, sem aðeins hefir 110 volta spennu. Sú stöð verður nú lögð niður, og verður því annað tveggja að hætta við Röntgenstofuna eða styrkja hana til þess að fá þann útbúnað, að hún geti notað rafmagn frá Elliðaárstöðinni. En til þess þarf aðallega „Omformer“, sem Danir kalla. Auk þess er gert ráð fyrir því að koma þar um leið fyrir Finsens-lömpum, því að það þykir sparnaður að geta unnið að þessu öllu í einu, en þessir lampar eru nauðsynlegir þar, hvort eð er, svo margir sjúklingar með hörundsberkla sem nú þurfa að fara erlendis, af því að tæki vantar hjer.
Næsti liðurinn er um styrk til Sigvalda Kaldalóns læknis, og er margt það sama um hann að segja og styrkinn til Ara Arnalds. Hann er veikur og þarf utan, og fer fram á það að fá að halda embættislaunum sínum og fá styrk til að launa mann í staðinn á meðan. Nefndin hefir þó valið mismunandi leiðir, og kemur það af mismunandi afstöðu mannanna, til ríkissjóðs, þannig, að annar hefir t. d. s enga peningaábyrgð fyrir ríkissjóð.; Nefndin segir einnig, að veita megi „alt að“ hinni tilteknu upphæð, því að hún' verður ekki fastákveðin fyr en vitað er, fyrir hvaða laun maður fæst, og borgar stjórnin auðvitað ekki meira út en seni því nemur, og getur til þess fengið t. d. afrit af samningunum.
Svo kemur utanfararstyrkur til Gunnlaugs Claessens læknis, og stendur hann í sambandi við fyrri fjárveitinguna til Röntgenstofunnar. Ætlar hann að kynna sjer framfarir geislalækninganna og sækja sjerfræðingafundi, sem halda á í þeim efnum. Það gæti einnig orðið sparnaður á hinum liðnum, ef læknirinn færi sjálfur til áhaldakaupanna, eins og hann gæti gert um leið, því að þau fást oft ódýrari þannig heldur en eftir pöntun. Ef keyptir yrðu Finsens-lampar, kveðst læknirinn einnig þurfa að kynna sjer þær lækningar betur, til þess að geta tekið þær að sjer, enda er það vitanlegt yfirleitt, að engum eru eins nauðsynlegar tíðar utanfarir og einmitt læknum, einkum þeim, sem fást við vandasamar sjergreinir.
Um Jón Kristjánsson er því líku máli að gegna. Hann hefir rekið hjer lækningastofu með ýmsum rafmagnsáhöldum. en þau verða ónotandi þegar ný spenna kemur í leiðslurnar. alveg eins og á Röntgenstofunni, og þarf því að endurnýja þau. Alþ. hefir áður viðurkent nauðsyn þessarar lækningastofu, með því að veita styrk til áhaldakaupanna, enda hefir fjöldi sjúklinga utan af landi sótt þangað.
Næst er svo ofurlítil launabót til dyravarðanna Jóns Straumfjörð og Ól. Rósenkrans. Hvorugur þeirra er í launalögunum, eins og verðir Safnahússins og Mentaskólans, og virðast þó hliðstæðir, en hafa nú borið skarðan hlut frá borði, og er nú ætluð þessi uppbót fyrir 1920, en koma að öðru leyti inn í væntanlega brtt. nefndarinnar við launalögin.
Næst er svo fjárveiting til byrjunar á undirbúningi Holtavegar í Rangárvallasýslu. Öllum ber saman um það, að vegurinn sje ófær, og hafði vegamálastjóri lagt til, að veittar yrðu 25 þús. kr. til hans, gegn þriðjungi frá sýslunni. Nú er þó ekki farið fram á meira í bili, en má búast við að það aukist síðar.
Næsta brtt. fer fram á 20 þús. kr. til endurbóta á Arnarnesvita. Þetta er aðalvitinn við Hjúp, en er nú gamall og úr sjer genginn, bygður 1902, dýr í rekstri, húsið skemt og getur farið af þá og þegar. Vitamálastjóri hafði áður gert ráð fyrir því að bíða með þetta uns núverandi vitavörður legði niður starfið, en hann er nú að hætta. Vill vitamálastjóri því láta veita fje til þessa vita nú, einkum þar sem Austfjarðavitarnir verða ekki bygðir á næsta ári, þar sem sú fjárveiting er í fjárlögum fyrir 1922.
Þeir eru þó tiltölulega nærri hvor öðrum, Gjögurviti við Húnaflóa og Arnarnesviti við Ísafjarðardjúp; og svo bætist við Elliðaeyjarvitinn á Breiðafirði. Það er gamall viti og ófullkominn, aðeins ljósviti, gefur ekki leiðarljósmerki nema í eina átt, vestur og út flóann. Nú hefir komið til tals að byggja vita í Höskuldsey, en vitamálastjóri telur eðlilegra að breyta heldur Elliðaeyjarvitanum í hornvita, sem sýni innsiglinguna milli skerja og eyja, og hverfa þar með frá Höskuldseyjarvitanum. Eins og jeg gat um áðan, þá er þessi viti í sambandi við hina vitana og nálægt þeim. Vitamálastjóri telur líka óhjákvæmilegt að byggja hann upp, og óheppilegt, að það dragist öllu lengur. Geta má og þess, að búast má við, að rekstrarkostnaður við þennan nýja vita verði minni heldur en við þann gamla.
Jeg skal taka það fram þegar, að nefndin hefir ekki leitað álits hæstv. stjórnar um þennan vita, en aftur á móti hefir hún leitað þess um Arnarnesvitann. En þetta er af dálitlum misskilningi runnið. Vitamálastjóri kom á nefndarfund núna fyrir skömmu, og áleit nefndin, að hann myndi hafa borið sig saman við stjórnina viðvíkjandi endurbyggingu þessa vita, og ljet sjer nægja það. Síðan hefir hún þó komist að því, að svo muni ekki hafa verið.
Því kemur þriðji vitinn, Sandgerðisvitinn. Það stendur nú svo á með þann vita, að hann er upphaflega reistur af útgerðarmönnum í Sandgerði, sem síðan hafa sjeð um rekstur hans og tekið gjald af bátum þeim, sem gerðir hafa verið út þar um slóðir. Umkvartanir hafa borist víða að um rekstur vitans, t. d. bæði frá stjórn Fiskifjelags Íslands og Samábyrgð útgerðarmanna, sem segir frá slysi, sem þar hafi komið fyrir og beinlínis kent um, að vitinn hafi verið í ólagi, en þetta slys kostaði fjelagið 25 þús. kr. Þetta hefir verið rætt við vitamálastjóra, og telur hann sjálfsagt, að ríkissjóður kosti endurbygginguna og taki algerlega að sjer rekstrarkostnaðinn, af því að reynslan hafi sýnt, að einstaklingar kunna ekki að sjá um vita eins og vera ber. Og jeg get bætt því við, að fjhn. og sjútvn. eru á sama máli um þetta atriði, enda tæplega að búast við, að útgerðarmenn, eins og sakir standa, leggi sjálfviljugir út í þennan kostnað, og báðar nefndirnar hafa litið svo á, að óviðkunnanlegt sje, að á svona stað sjeu það einstakir menn, sem reka vitann eftir sínum geðþótta og taki gjald af honum. einnig eftir sínum geðþótta. Til byggingar þessarar eru áætlaðar 10 þús. kr., en rekstrarkostnaður er ekki tekinn með. því að honum er ætlað að koma annarsstaðar.
Næsta brtt. er lífeyrir til Gests Guðmundssonar. Nefndin hefir viljað mæla með því, að maður þessi fengi þennan styrk æfilangt, af því að rök eru færð fyrir því, að hann hefir slasast á meðan hann var að gegna starfi sínu í þjónustu ríkisins. En þó að nefndin leggi þetta til, vill hún ekki með því skapa það fordæmi, að vitaverðirnir verði settir á eftirlaun. En hjer stendur svo sjerstaklega á, að taka verður fult tillit til þess, eins og brjef vitamálastjóra ber með sjer.
Næsti liður er uppbót til Ólafs Rósenkrans, og hefi jeg áður minst á hana.
Þá koma dýrtíðarbætur til háskólaritara. Það hefir verið haft orð á því áður, að maður þessi hefði ekki rjettlátar tekjur, enda virðist eins og stjórnin hafi gengið inn á það, með því að leggja til, að honum verði veittar 800 kr. dýrtíðaruppbætur næsta ár. En nefndinni hefir ekki þótt ósanngjarnt að veita honum dýrtíðarbætur líka fyrir þetta ár, og miða þær við þá vísitölu, sem var í fyrra. Leggur hún því til, að uppbót sú nemi 600 kr., og því bætt við hann 300 kr. hvort ár, 1920–21.
Þá kemur næsti liður, sem hljóðar um launabætur til kennaranna Sigurbjörns A. Gíslasonar og Guðmundar Kristjánssonar.
Þetta er ekki neitt nýmæli fyrir þingið. Í fyrravetur lágu frammi á lestrarsal Alþingis umkvartanir frá þessum kennurum. og samþ. fjvn. þá, að laun þessara kennara yrðu sett í samræmi við laun annara fastra kennara við skóla ríkisins. En það, sem kennarar þessir kvarta um, er það, að þeir hafi 1000 kr. lægri byrjunarlaun heldur en föstu kennararnir við t. d. Kennaraskólann og Gagnfræðaskólann á Akureyri, en að skólastjórarnir njóti þó sömu launa. og það samkv. launalögunum, og skólastjórar nefndra skóla. Segjast þeir þó þurfa að kenna eins mikið og fastakennarar annara skóla. Þessu vill nefndin kippa í lag og láta kennara þessa njóta sömu launa og aðra, sem sambærilegir eru á þessu sviði. Nefndin lítur svo á, að þessir kennarar vinni eins mikið og þurfi eins langan tíma til undirbúnings þessa starfs eins og þeir kennarar, er þeir hafa borið sig saman við, og furðar á því, að þetta skyldi skjótast fram hjá þm. þeim, sem fjölluðu um launalögin 1919. Aftur á móti hefir nefndin leitt hjá sjer að ákveða nokkuð um þá tvo aukakennara, sem teknir vorn við þessa skóla í haust, með því að hún lítur svo á, að þar sje um samningsatriði að ræða milli þeirra og stjórnarinnar, að minsta kosti hvað þetta ár snertir.
Þá er næsti liður í brtt. nefndarinnar. unglingaskólinn í Hjarðarholti. Þessi skóli hefir áður, eins og kunnugt er, notið styrks í fjárlögunum. en af því að búist var við, að hann mundi leggjast algerlega niður, var hann ekki tekinn upp í síðustu fjárlög. Þetta hefir nú breyst, skólinn er rekinn í vetur, og eftir því, sem menn best vita, af miklum dugnaði, svo nefndin hefir viljað sýna honum fullan sóma. Þessi nýi skólastjóri virðist duglegur og áhugasamur maður, svo búast má við, að skólinn nái sinni hylli aftur og verði engu síðri en hann áður var.
Þá er það Hvítárbakkaskólinn. og má nú segja, að hjer sje gamall kunningi á ferðinni; þykir því rjett að rifja upp sögu hans hin síðari árin. Þegar Sigurður Þórólfsson ljet af skólastjórninni og helst var í ráði, að skólinn legðist algerlega niður. bundust nokkrir áhugasamir menn samtökum um það að mynda hlutafjelag, kaupa skólann og reka hann áfram. Hafa þeir kostað talsverðu fje til þess að bæta upp húsið, og talið sig bíða mikinn halla við þetta altsaman. Fara þeir því fram á 7500 kr. viðbótarstyrk. Enda þótt nefndin vilji fyllilega viðurkenna áhuga þessara manna og telji það víst, að skóli þessi geti mörgu góðu til leiðar komið, sjer hún sjer þó ekki fært að veita þessa upphæð. en vill þó gera nokkra úrlausn, og leggur því til, að skólanum verði veittar 3000 krónur.
Þá rekur lestina í þessum skólastyrkveitingum Flensborgarskólinn. Hann hefir nú lengi verið á gjöf hjá ríkissjóði, því að landið hefir altaf orðið að hlaupa undir baggann og greiða hallann, sem orðið hefir á rekstri hans, enda fjárveitingin til hans allajafna mjög af skornum skamti, miðað við aðra skóla. og kennurum hans ver launað heldur en sambærilegum kennurum við aðra skóla ríkisins. Þetta er því undarlegra sem flestir þm. þekkja þó forstöðumanninn að öllu góðu, og síst sæmandi, að hann beri jafnskarðan hlut frá borði og raun hefir á orðið, eða sje langtum lakar launaður heldur en aðrir skólastjórar sambærilegir. Halli á rekstri skólans þetta ár er sú upphæð, sem tekin er hjer upp í brtt., og er það skuld við gjaldkera hans. Auk þess hefir skólinn orðið að grípa til sjóðs eins, er stofnuninni fylgir, en ætlaður þó til annars, og nemur sú upphæð 2700 kr. Sú skuld mun nú eiga að standa, þangað til eitthvað bætist í búi, en hitt fanst nefndinni óhjákvæmilegt að hlaupa undir baggann og greiða skuld þá, sem skólinn er í við gjaldkera sinn, og engin önnur leið þá fær, nema ef hafist væri handa og leitað til þjóðarinnar um almenn samskot, en það telur nefndin lítt sæmandi, hvorki gagnvart þessari stofnun nje skólastjóra hennar og öðrum kennurum.
Þá er næst styrkur til blindrar stúlku. Um hann get jeg verið fáorður. Sá styrkur, sem ætlaður er í fjárlögunum til þess að kosta kenslu blindra barna. er þegar uppetinn. Leggur nefndin því eindregið til að veita þennan styrk, sem nefndur er, með því að hún lítur svo á, að þar sem slíka kenslu er ekki hægt að fá hjer innanlands og stúlka þessi þarfnast, en hverjum einstakling ofraun að standast þann kostnað á erlendum skólum. Þá verði ekki hjá því komist að ríkið láti eitthvað af mörkum rakna, gegn því þó, að sumt komi annarsstaðar frá.
Þá kemur styrkur til alþýðubókasafns í Reykjavík. Bókasafn þetta hefir yfir talsverðu fje að ráða, eins og kunnugt er. Það fjekk 20 þús. kr. af fje því, sem fekkst fyrir trollara þá, sem seldir voru úr landi fyrir nokkrum árum, og bæjarsjóður hefir lagt því í ár 3 þús. kr. Að vísu hefir verið farið fram á hærri upphæð, en þó væntir stjórn bókasafnsins, að þessar 2 þús. kr., sem nefndin leggur til að veittar sjeu. komi að nokkru haldi. Slík styrkbeiðni sem þessi er ekkert nýmæli, því að í fjárlögunum stendur árlega styrkur til sýslubókasafna, gegn hálfu framlagi af viðkomandi sýslusjóðum. Rekstrarkostnaður þessa bókasafns er áætlaður alt að 20 þús. kr. þetta ár, svo þessi styrkur getur ekki talist ýkjahár.
Þá er næsti liður dýrtíðaruppbót til Einars Jónssonar listamanns. Þessi maður hefir í fjárlögunum kliptar og skornar 1500 kr. á ári, og segir það sig sjálft, að af slíkri upphæð getur hann ekki lifað, og hlýtur að eiga mjög andstætt, eins og aðrir listamenn nú á tímum, því að verk sín geta þeir ekki selt, og geta því ekki lifað af þeim. Nefndin lítur svo á, að úr því að Alþingi hefir nú kostað heimflutning listaverka þessa manns og bygt hús yfir þau. þá verði Alþingi að láta sjer farast sómasamlega við þennan listamann. svo að honum geti liðið þolanlega.
Þá hefir nefndin orðið við tilmælum nefndar þeirrar, sem úthlutar listamannastyrknum, og tekið tvo menn upp í fjáraukalögin, og er það þessi Rómastyrkur, sem þar er nefndur. Hvorugur þessi maður er hjer á landi, en þeir hafa borið sig upp við nefndina og æskt viðbótarstyrks. en 15 þús. kr. listamannastyrkurinn er þegar uppetinn, og höfum við þá litið svo á, að úr því að gengið var inn á að veita þennan styrk til suðurfarar, þá væri ekki til neins að skera hann svo við neglur sjer, að hann komi að litlu eða engu haldi.
Prestafjelagsritið vill nefndin styrkja á sama hátt og önnur sjerfræðirit. Öll bókaútgáfa er svo dýr nú á dögum, að tæplega er í það ráðandist án styrks, eða ritin verða svo dýr, að einstaklingar kaupa þau ekki, og koma þau þá ekki að tilætluðum notum. Annars þykist jeg ekki þurfa að tefja lengur við nauðsyn þessa máls: það á svo góða málsvara hjer í deildinni, þar sem guðfræðingarnir eru, og munu þeir leggja því liðsyrði, ef þörf gerist.
Þá er komið að stórum útgjaldalið, sem nefndin hefir verið að reyna að spyrna á móti. Nefndin hefir grenslast eftir því, hvort óhjákvæmilegt væri að halda verkfærasýningu í vor, og hún hefir átt tal um það við stjórn Búnaðarfjelags Íslands, einkum þó forseta þess, og eftir þeim upplýsingum, sem hún hefir fengið, þykist hún sjá, að svo langt sje komið undirbúningi þessa máls, að ekki verði snúið til baka. Það virðist þegar vera vaknaður mikill áhugi víðsvegar um land alt að sækja á sýningu þessa, og ráðstafanir gerðar um verkfærasendingar til hennar, bæði utan lands og innan. Það var farið fram á 30 þús. kr. styrk, og þess getið, að kostnaður við sýninguna mundi ekki verða undir 50 þús. kr. En annars mun hæstv. atvrh. (P. J.) skýra nánar frá máli þessu, svo jeg get látið hjer staðar numið. En nefndin hefir að lokum gengið inn á að veita til þessarar sýningar 20 þús. kr.
Þá koma launauppbætur til Einars E. Sæmundssonar skógarvarðar. Starfsmaður þessi hefir, þótt undarlegt sje, skotist undan launalögunum 1919, þegar hækkað var við hina skógarverðina. Það virðist öll sanngirni mæla með því, að hann hafi ekki lægri laun en þeir, enda er komið fram hjer í deildinni frv. til þess að leiðrjetta þetta. Eru því uppbætur þessar taldar honum fyrir 1920, en ætlast til, að á þessu ári komist hann undir launalögin. Uppbót þessi er 200 kr. og dýrtíðaruppbót af því, sem verður til samans 440 kr.
Heimilisiðnaðarfjelag Íslands hefir sótt um styrk til þess að halda sýningu í sambandi við Búnaðarfjelagssýninguna í vor. Lítur nefndin svo á, að með því að sýningar þessar sjeu samtímis, megi gera ráð fyrir því, að þær verði fjölsóttari, og þá gagn þeirra meira. Þess vegna leggur hún til, að Heimilisiðnaðarfjelaginu sje veittur 2 þús. kr. styrkur.
Þá kemur styrkur til aðstoðarmanns húsagerðarmeistara. Nefndinni gleymdist að taka þennan styrk upp í fjáraukalögin við 2. umr.. og hafði hæstv. stjórn þó óskað þess. Starf húsagerðarmeistara er orðið svo mikið, að óhjákvæmilegt er að taka aðstoðarmann. Vitanlega hefir slíkur maður verið tekinn áður, þegar svo stóð á, en kostnaðurinn lagður að einhverju leyti á bvgginguna, og hefir það stundum orðið dýrara heldur en ef maðurinn væri á föstum launum. Manni þeim, sem hjer á hlut að máli, bauðst í vetur alllífvænleg staða, svo stjórnin, í staðinn fyrir að sleppa honum, rjeði hann í þjónustu ríkisins, upp á væntanlegt samþykki Alþingis. Nefndin hefir rannsakað þetta mál og komist að raun um, að það muni margborga sig fyrir ríkissjóð að hafa slíkan mann á föstum launum.
Þá kem jeg nú að síðustu brtt. á þskj. nefndarinnar. Nefndin leit nú svo á, að heimild þessi þyrfti ekki að fylgja fjárlögunum. Stjórnin hlýtur að mega láta bæta stiga og gólf í opinberum byggingum, án þess að spyrja þingið um leyfi til þess. Nú er það vitanlegt, að stigarnir í safnahúsinu eru til lítils sóma ríkissjóði, og svo er um fleira, er viðkemur byggingum okkar.
í sumar er í ráði að Eimskipafjelag Ísalands fái mann og efni til þess að láta gera þetta, og ætti það að verða ódýrara fyrir ríkissjóð að komast í slíkt samband. Nefndinni fanst rjett að hafa heimild þessa svo víðtæka, að hún næði til fleiri bygginga, t. d. fanst henni ekki ósæmilegt, þó sett yrði slitgólf í forstofu Alþingis.
Þá kem jeg að brtt. nefndarinnar á þskj. 301. um 25 þús. kr. styrk til björgunarskipsins „Þórs“ í Vestmannaeyjum. Vestmannaeyingar fóru að vísu fram á að fá greiddan allan halla á rekstri skipsins á árinu, og var það mikið fje. Fjárveitinganefnd vísaði svo þessu til sjávarútvegsnefndar, og lagði hún til, að Vestmannaeyingum yrði gerð slík úrlausn sem brtt. fer fram á. Fjvn. hallaðist einnig að þessu. og þá einkum með það fyrir augum, að fjelagið hefir nú tekist á hendur að hafa lækni um borð, til þess að geta veitt veikum sjómönnum læknishjálp. Og hefir slíkt ærinn kostnað í för með sjer. Jeg býst nú raunar við því, að Vestmannaeyingum þyki þetta lítið, en úr því að sjútvn. sá sjer ekki fært að ganga lengra, þá var ekki von, að fjvn. gerði það.
Þá vil jeg geta þess, út af fyrirspurn frá hæstv. stjórn til nefndarinnar um styrkveitingu til Guðmundar Olafssonar kennara, er veittur var utanfararstyrkur 1920, en gat þá eigi notið hans, að nefndin sjer ekki neitt á móti því að verða við þeirri ósk stjórnarinnar, að þessi maður fái að halda styrknum, þótt tíminn sje útrunninn. Og telur nefndin, að ekki þurfi endurveitingu. Þessi fyrirspurn var frá hæstv. atvrh. (P. J.), og er leitt, að hann er ekki hjer viðstaddur, en jeg vil þá biðja hæstv. fjrh. (M. G.) að bera honum þessi orð nefndarinnar.
Mig langar til að skjóta þeirri fyrirspurn til hæstv. stjórnar, hvort hún geti ekki skýrt frá því nú, hvað hún hafi í hyggju um símalagningar og aðra svipaða útgjaldaliði í fjárlögunum. Og enn fremur, ef hún ætlar að fresta þeim framkvæmdum, hvort hún telji sig þá ekki þurfa heimild frá þinginu til þeirrar frestunar. Þetta þætti fjvn. mjög gott að vita, áður en hún afgreiðir 13. gr. fjárlaganna frá sjer.
Þá er líklega best að fara dálítið út í brtt. einstakra þingmanna, til þess að þeir gangi ekki að því gruflandi, hvaða hug nefndin ber til þeirra, hverrar um sig.
Verður þá fyrst fyrir mjer brtt. háttv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) á þskj. 244. Um fyrri till. hefir nefndin óbundin atkvæði og lætur samgmn. um hana. En um síðari brtt., lækkun á styrk til ekkju Matth. Jochumssonar. er það að segja, að nefndin getur ekki á hana fallist, og fellur alls ekki frá því, að minsta kosti verði styrkurinn þetta ár svo hár, sem nefndin stakk upp á við 2. umr., og sem þá var samþ. Hins vegar getur vel til mála komið, að þessi styrkur verði ekki jafnhár framvegis.
Þá kemur brtt. á þskj. 260, frá hæstv. atvrh. (P. Jj, sem nefndin mun fallast á.
Um brtt. á þskj. 264 vill nefndin ekki gefa neina ákveðna yfirlýsingu. Um það hefir ekki náðst fult samkomulag í nefndinni, og hefir hún þar því óbundnar hendur um atkvæðagreiðslu.
Um brtt. á þskj. 281 getur nefndin ekki gefið neitt úrslitaálit. Hún hefir engar till. fengið um það mál frá samgmn. Býst við, að háttv. flutningsmenn muni skýra þá till. fyrir hv. þdm.
Þá kom brtt. frá hæstv. fjrh. á þskj. 283. Tek jeg fyrst tvær síðari brtt., og hefir nefndin ekki mikið við þær að athuga. Munu sumir nefndarmenn sennilega greiða atkvæði með þeim, en aðrir á móti. En um 1. brtt., um að 14. liður 6. gr. falli niður, er það að segja, að í samræmi við það, sem nefndin hefir áður samþykt, þá getur hún ekki fallist á, að dýrtíðaruppbótin til Jóhannesar L. L. Jóhannssonar falli niður. Hæstv. fjrh. (M. G.) færði þau rök til þessa við 2. umr., að orðabókarstyrkur sá, sem Jakob J. Smári hefir, gæti tekist af honum, þar sem hann síðar hefir fengið kennarastöðu við Mentaskólann, og að þá upphæð mætti síðan greiða Jóhannesi föður hans. Hæstv. fjrh. (M. G.) spurði þá fjvn. um álit hennar. Hún lítur svo á, að stjórnin megi til að greiða Jakobi nafnbundinn fjárlagastyrk, nema samkomulag fáist við þennan mann um eftirgjöf. Vil jeg og geta þess, að fjvn. þykir leitt, að stjórnin skyldi ekki ganga hreinlega frá málinu áður en maðurinn var settur inn í þetta nýja embætti.
Þá koma þrjár brtt. á þskj. 236, 242 og 255, og allar um einn mann. Lítur svo út, að mikils hafi hjer þótt við þurfa. Annars veit jeg ekki, hvað háttv. flm. meina með því að koma fram með þetta nú. Það er þegar búið að borga manninum meiri hlutann af þessu fje. Ætlast þeir þá til, að þessi maður endurgreiði upphæðina eða að stjórnin greiði hana úr eigin vasa?
Það er hægt að breyta fyrirkomulaginu á þessum styrk í framtíðinni, en jeg sje ekki, að hægt sje að gera það nú. Háttv. flm. ættu því að taka þessar brtt. aftur nú, en reyna síðan að komast að samkomulagi við fjvn. um laun hans framvegis.
Um brtt. á þskj. 293 vil jeg geta þess, að nefndin er á móti aðaltill., en mun styðja varatill.
Um brtt. á þskj. 289 hefir ekki náðst samkomulag í nefndinni, og hefir hún þar því óbundin atkvæði.
Þá ætla jeg að láta hjer staðar numið að sinni. Hefi verið alllangorður, en hjá því varð ekki komist, einkum þar sem ekkert skrifað álit fjvn. er til.