03.05.1921
Neðri deild: 61. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2499 í B-deild Alþingistíðinda. (79)
Áskorun um kvöldfundi
Bjarni Jónsson:
Þessi ummæli hv. þm. N.-Ísf. (S. St.) munu eiga að merkja það, að nefndin ætli alls eigi að skila frv. Munu ástæður hennar fyrir því vera köpuryrði nokkur, sem fallið hafa frá mjer í garð hennar. Þykir mjer gott, að það sjáist í Þingtíðindunum, hversu göfugar ástæður henni hafa til gengið til að halda fyrir kjósendum rjetti þeirra.