13.04.1921
Neðri deild: 42. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 687 í B-deild Alþingistíðinda. (793)

30. mál, fjáraukalög 1920 og 1921

Eiríkur Einarsson:

Jeg á hjer þátt í brtt., um að veittur verði 12000 kr. styrkur til bátaflutninga milli Reykjavíkur og kauptúnanna eystra. Samskonar upphæð og hjer er beiðst, 12000 kr., fórum við fram á í fyrra, og fengum þá ósk okkar uppfylta. Þessum 12000 kr. var þá, að tillögu sýslunefndar Árnessýslu, varið til að standast kostnað við sendingu á fóðursíld hjeðan og austur, sem þó varð talsvert meiri en upphæðinni nam.

Jeg hefi ástæðu til að ætla, að háttv. þm. sjái fylstu sanngirniskröfu í styrkbeiðninni, sem gerð er til að ljetta undir með jafnfjölmennum hjeruðum og Árnessýsla og vesturhluti Rangárvallasýslu er, sem einnig verður þessara ferða aðnjótandi, þar sem á þessu svæði búa um eða yfir 8000 manns, og sjest af því, hve margt manna á hjer hagsmuna að gæta. Jeg geri ráð fyrir, að ef bátur fæst til þess að annast ferðir austur, þá muni flutningsgjaldið eigi nema minnu hjeðan en 7–8 aurum á kíló, komið að bryggju þar, og sjá menn af því kostnað þann, er hjeraðsbúar verða að leggja á sig til þessara vöruflutninga. Ef til vill er þó þessi kostnaður ekki aðalatriðið, heldur öryggisleysið um aðdrætti, þar sem ekkert er á því að byggja, að fastar áætlunarferðir komi að nokkrum notum, því að þótt ákveðið væri, að ferðir þessar skyldu farnar á ákveðnum dögum, þá eru mjög litlar líkur til þess, að áætlunarferðir til þeirra lendingarstaða kæmu að haldi. Nú, t. d., er Suðurlandi ætluð viðkoma á þessum stöðum fjórum sinnum í sumar, en þessir staðir eru allir merktir með stjörnum sem þýðir það, að skipið kemur aðeins á hafnir þessar, ef veður leyfir, og reynslan hefir sýnt hve sjaldan það er.

Jeg veit því, að allir hljóta að viðurkenna, að þessar Suðurlandsferðir koma vart að notum, og lítt er þeim að treysta, og mjer finst undarlegt, að þegar búið er að styrkja Eimskipafjelagið til að koma við á flestum höfnum norðanlands og austan, ef hjeruðunum eystra verður synjað um þennan styrk.

Eins og jeg tók fram áðan, þá er eina ráðið að tryggja sjer bát hjer Reykjavík, sem skýst austur þegar veður er hagstætt, en ekki bundinn við ferðirnar á ákveðnum degi. Til marks um það, hver kostnaður getur hlotist af þessum erfiða og stopula bátaflutningi, sem er þó óhjákvæmilegur, skal jeg geta þess, að einn báturinn, sem ráðinn var og leigður hjer til vöruflutnings austur. tók 500 kr. fyrir sólarhringinn, en varð svo að bíða byrjar í 14 daga, ef ekki lengur, á kostnað leigutaka, og er auðsætt, hverjir neyðarkostir slíkir aðdrættir eru fyrir verslun bænda austanfjalls. Jeg veit, að kaupfjelögin eystra leggja mikið kapp á að fá báta til þess að flytja vörur austur, en þau geta ekki fengið þá til þessara ferða, nema með því að borga þeim einhvern styrk, auk flutningsgjaldsins, því að ferðirnar eru svo stopular, að eigendur bátanna geta ekki skuldbundið sig til þessara flutninga, nema þeir fái fyrirheit um styrk í þessu skyni. Jeg skal geta þess, að jeg mundi sætta mig við, að þessar Suðurlandsferðir á umræddar hafnir yrðu algerlega strikaðar út úr áætlun skipsins, ef þessi styrkveiting nær fram að ganga, sem jeg hefi ástæðu til að ætla. Þetta eru aðalsamgöngufærin á sjó, er verður að nota svo mjög, á meðan verslanirnar eystra fá ekki kaupför utan að, sem ekki hefir orðið raun á síðan snemma á stríðsárunum. Sje það ætlunin að veita styrk til samgangna og flutninga með ströndum fram. veit jeg, að þessari styrkbeiðni verður sint. Þar er svo miklum erfiðleikum úr að bæta.

Jeg gat þess áðan, að styrknum, sem veittur var í fyrra, með samráði stjórnar og sýslunefndar, var varið til þess að flytja fóðursíld austur í sveitirnar. Sá flutningur varð svo dýr til Eyrarbakka, að hann nam sem næst 8 kr. á hverja tunnu. En tunnurnar voru 1600 að tölu, og átst því styrkurinn upp til þessa flutnings eins.

Jeg skal ekki lengja umræður með því að tala um einstakar till. um fjáraukalögin. Það væri óðs manns æði að ætla sjer hjer að fara að gera grein fyrir atkvæði sínu um allan þann tillögusæg. Enda mundu ekki koma um þær óskeikulir dómar frá mjer, fremur en öðrum háttv. þm. Það mundi alt verða meira og minna handahóf og álitamál.

Jeg heyri því mjög borið við, að nú sje þörf á að takmarka fjárgreiðslur, vegna tómahljóðsins í ríkisfjárhirslunni. Jeg er þar einnig á sama máli um það, að gæta beri í allrar varúðar í þeim sökum.

Menn hafa og deilt um það, hvort hjer ætti að spara eyririnn fyrir krónuna eða ekki. Sumir telja fjárvandræðin vera að kenna forsjárleysi stjórnarinnar í þeim sökum, en aðrir telja það stafa af því, að ekki sje sparað sem skyldi á hverjum útgjaldapósti um sig, eða þeim öllum í sameiningu. Jeg hallast á báðar þessar sveifar, og tel sökina liggja bæði hjá þingi og stjórn.

Það hefir hjer verið talað um styrki til listamanna. Mun jeg þar haga atkvæði mínu í samræmi við þá stefnu, að opna ekki dyrnar fyrir hverskonar styrkbeiðnum. en láta það ráða, hvað mjer virðist sanngjarnt og rjett um hvern lið uni sig. Hins vil jeg geta, að jeg álít mjög óheppilega stefnu að fleyga listamannastyrkinn í sundur, eins og hjer er verið að gera. þ. e. að þingið veiti í þessu skyni ákveðna. sameiginlega fjárhæð og taki líka á sína arma sjerveitingar til einstakra listamanna. Þó get jeg verið með slíkum fjárveitingum, ef alveg sjerstakar ástæður eru fyrir hendi. Jeg get til dæmis ekki verið á móti því, úr því nú er búið að flytja listaverk Einars Jónssonar heim, að þingið þá veiti honum styrk til þess að hann geti lifað sæmilegu lífi. Sama get jeg sagt um Ríkarð Jóusson.

Viðvíkjandi verklegum framkvæmdum, t. d. vitunum, þá verð jeg að taka það fram, að jeg tel þá togstreitu, sem um þau mál hefir orðið hjer í hv. deild, afaróheppilega, og beinlínis illa farið með þingtímann að verja honum til slíks. Jeg álít, að öll slík mál, svo sem símar, vitar, vegir og brýr, eigi að vera í föstu formi og ákveðinni röð fyrir þinginu, svo ekki geti slík togstreita átt sjer stað um þau milli fjórðunganna.

Það er gott að taka það fram nú strax, áður en fjárlögin koma til umræðu, að það þarf að gera sjer glögga grein þess, hvernig eigi að framkvæma þau verk, sem þar er ætlað fje til, þannig, að fjeð verði að sem bestum notum. Á þessu hefir oft orðið misbrestur, og ekki síst nú á síðustu árum. Hafa háar fjárhæðir orðið að sama og engu, vegna erfiðrar aðstöðu, hás kaupgjalds og ónógrar verkstjórnar. Og þekki jeg þess dæmi úr mínu bygðarlagi. Væri ef til vill ekki ástæðulaust að binda sumar fjárveitingarnar að minsta kosti skilyrði um kaupgjaldshámark og verkstjórn, sem yrði í betra samræmi við greiðslugetu og tilætlað starf en stundum á sjer stað. Segi jeg þetta til athugunar fyrir fjárveitinganefnd og aðra háttv. þm.

Jeg læt hjer svo staðar numið. Vona að brtt. okkar mæti góðum undirtektum í háttv. deild.