13.04.1921
Neðri deild: 42. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 698 í B-deild Alþingistíðinda. (795)

30. mál, fjáraukalög 1920 og 1921

Þorleifur Guðmundsson:

Jeg þarf aðeins að svara nokkrum atriðum, sem minst hefir verið á í umr.

Hæstv. fjrh. (M. G.) mintist á eftirlaun Sigurðar Jónssonar, fyrv. atvrh., þessar 12619.90 kr., og sagði, að þau hefðu verið greidd með það fyrir augum, að meiri hl. þingsins mundi því fylgjandi. Hann sagði einnig, að fjárveitinganefndir beggja deildanna hefðu mælt með styrknum. En jeg vil mótmæla þessu. Jeg tel það hættulega braut, ef þingið gengur inn á það að fara að veita ráðherra eftir ráðherra eftirlaun, eða heiðurslaun, ef menn vilja nefna það því nafni. En það verða reyndar engin heiðurslaun, ef allir ráðherrar eiga að fá þau, hvort sem þeir hafa verið nýtir eða ónýtir.

Jeg vil víkja máli mínu til þeirra bænda, sem eru hjer í deildinni; jeg veit, að þeir láta ekki þvinga sig til að ganga inn á það að samþykkja að veita einum manni 12 þús. og 600 kr. laun, fyrir að hafa verið ráðherra í fáein ár, þegar ekki er hægt að fá fje til þjóðþarfra fyrirtækja, og ekki styrk til bátaferða handa þeim hjeruðum, sem tept eru um samgöngur á sjó 3/4 hluta ársins. Það er ekki hægt að byggja brýr og ekki hægt að leggja vegi, — en það er hægt að snara 12600.00 kr. í einn mann fyrir ekki neitt.

Jeg vona því í fyrsta lagi, að hv. bændur hjer í deildinni og aðrir háttv. deildarmenn felli þennan lið, og staðfesti ekki þetta illa fordæmi stjórnarinnar, að veita fje án þess formlegt samþykki þingsins sje fyrir hendi. Og í öðru lagi slái því þar með föstu, að ráðherrum verði ekki veitt eftirlaun, því að það er skrípaleikur að gera slíkt, þegar það hefir verið numið úrlögum.

Í þriðja lagi vænti jeg, að háttv. bændur deildarinnar fari ekki sömu leiðina og sagt hefir verið um embættismenn þá, er setið hafa á undanförnum þingum, að þeir hafi skarað fullmikið eld að sinni köku, og bið þá jafnframt að minnast orða minna hjer í deildinni fyrir skemstu: að við erum ekki komnir hingað á Alþing til þess að skifta ríkissjóði upp, upp á kunningsskap.