13.04.1921
Neðri deild: 42. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 699 í B-deild Alþingistíðinda. (796)

30. mál, fjáraukalög 1920 og 1921

0796Þórarinn Jónsson:

Það er aðeins örstutt athugasemd. Jeg get hlaupið yfir það, sem hæstv. atvrh. (P. J.) sagði um bryggjuna á Blönduósi, með því að háttv. frsm. fjvn. (M. P.) hefir svarað því að mestu leyti.

Jeg er háttv. 1. þm. Bang. (Gunn. S.) þakklátur fyrir það, að hann er þessari styrkveitingu hlyntur.

Svo vildi jeg aðeins drepa á þennan misskilning milli mín og nefndarinnar, að hann er ekki á mína hlið, heldur hjá háttv. fjvn. sjálfri.

Út af því, sem jeg sagði um styrkinn til listamanna, þá get jeg ekki viðurkent, að jeg hafi talað ósæmilega um listamennina. Jeg drap aðeins á þá stefnu, er þingið hefir upp tekið, og það ósamræmi, að þegar sjerstakri nefnd er falið að úthluta styrknum, þá á ekki að koma til mála, að þingið taki líka styrk upp í fjárlögin.

Háttv. frsm. (M. P.) sagði, að það hefði ekki verið ástæða til þess að halda, að það hefðu verið þeir lökustu, sem nefndin hefði haft út undan. (M. P.: Ekki ástæða fyrir nefndina að líta svo á).

Nú, ekki ástæða til þess að álíta, að þessir menn væru ekki þess verðir að verða styrks njótandi. Hún um það sem listdómari.

En mjer finst það einkennilegt að vera að taka þá upp, sem úthlutunarnefndin hefir skilið eftir vegna þess, að hún álítur þá óhæfari en aðra. Og svo er það algert brot á principi því, sem þingið hefir tekið.

Jeg þarf svo ekki meira um þetta að segja, en vil taka það fram, að brtt. um dýrtíðarbót til eins listamannsins vil jeg undanskilja.