13.04.1921
Neðri deild: 42. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 703 í B-deild Alþingistíðinda. (801)
30. mál, fjáraukalög 1920 og 1921
Frsm. (Magnús Pjetursson):
Hæstv. fjrh. (M. G.) kvað ekki rjett að ætlast til þess, að stjórnin væri sammála um öll smáatriði. Til þess hefi jeg nú aldrei ætlast. En jeg hjelt, að því væri líkt farið um ráðuneytið og nefndir, að þótt smávægilegur skoðanamunur sje, þá greiðir minni hl. ekki atkvæði gegn meiri hl. Og hæstv. atvrh. (P. J.) hefir lagt til, að Arnarnesvitinn yrði endurbygður, og það einmitt í sama brjefinu og hæstv. fjrh. (M. G.) var að lesa upp úr. Það var leitt, að hann skyldi ekki lesa brjefið til enda, því að hjer í niðurlaginn standa þessi orð, sem jeg vil leyfa mjer að lesa upp, með leyfi hæstv. forseta:
„Og hvað snertir Arnarnesvita, telur ráðuneytið, eftir því, sem fyrir liggur, rjett að taka uppástungur vitamálastjóra hjer að lútandi til greina“. Þetta eru skýr orð, og þarf ekki fleiri. Hæstv. fjrh. (M. G.) kvaðst ekki mundu mæla gegn styrknum til vitavarðarins, þótt hann teldi meiðslin ekki stórvægileg. Jeg held, að það sje þá óhætt að segja, að upphæðin er ekki heldur stórvægileg. Jeg vona að háttv. deild sjái, að hjer er um smámuni eina að ræða, aðeins 400 kr. á ári.
Um orðabókarstyrkinn er það að segja, að þótt ólíkt sje að sumu um þá Geir rektor Zoega og styrk hans og styrk Jakob Smára, þá er þó sumt hliðstætt. Þótt styrkurinn til rektors væri til útgáfu. þá hlýtur þó að hafa verið undangengið starf, sem var undir líkum skilyrðum og hjer er talað um, sem sje jafnframt skólakenslunni, og hefir þó enginn talað um, að rektor hafi vanrækt skyldustörf sín. Hann hefir þannig haft tíma til þess að vinna þetta verk, og það er mikið verk. Nú virðist það liggja í augum uppi, að sami tími fer til að vinna sama verk, hvort sem vinnandinn er styrktur til þess eða ekki. Því eru engar líkur til þess, að Jakob Smári fái eigi unnið það starf, sem til var ætlast, þegar honum var veittur styrkurinn. Og jeg sje ekki, að það breyti neinu, þótt hæstv. fjrh. (M. G.) tali um það, að fjárlög sjeu annars eðlis en öll önnur lög, enda gaf hann enga skýringu á þeim orðum.