13.04.1921
Neðri deild: 42. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 705 í B-deild Alþingistíðinda. (803)
30. mál, fjáraukalög 1920 og 1921
Jón Þorláksson:
Aðeins örfá orð út af ummælum hæstv. fjrh. (M. G.), um rjett stjórnarinnar til þess að spara fjárveitingar. Jeg vil ekki láta umr. enda svo, að skýring hæstv. fjrh. (M. G.) fái engan stuðning hjá deildinni. Og það er þá skoðun mín í því máli, að stjórnin hafi ekki einungis rjett, heldur líka beina skyldu til þess að fella niður greiðslu á einhverri veittri fjárveitingu, ef hún telur, að ástæðurnar fyrir fjárveitingunni sjeu burtu fallnar eða stórum breyttar, og að ekkert tjón stafi af því að fella niður greiðsluna.