26.04.1921
Efri deild: 52. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 734 í B-deild Alþingistíðinda. (824)

30. mál, fjáraukalög 1920 og 1921

Frsm. samgmn. (Halldór Steinsson):

Það hefir verið venja hjer á þingi, að samgmn. kæmi fram með brtt. og segði álit sitt um 13. gr. fjárlaganna, sem er 4. gr. hjer. Jeg vil því tala um þessa gr. örfá orð.

Eins og háttv. deild hefir sjeð, eru 6 af þessum liðum — 3. til 9. liður — settir inn af stjórninni, og mun hún hafa haft heimild til þess. Jeg fer ekki mikið út í þá hjer. 8. lið, sem er 80 þús. kr. til styrktar bátaferða á flóum og fjörðum kringum land, hefir ekki verið varið eftir tilætlunum síðasta þings. Það mun hafa verið tilætlun þingsins 1920, að honum yrði skift nokkurn veginn jafnt niður á alla fjórðunga landsins, og jafnt á báta, er höfðu styrk í fjárlögunum. En þetta hefir ekki orðið, því að mestallur styrkurinn hefir farið til Austur- og Suðurlands, en lítið til Norður- og Vesturlandsins. Jeg segi þetta ekki af því, að jeg ætlist til, að þetta verði tekið aftur, en aðeins til að minna stjórnina á, að æskilegt væri að hún úthlutaði slíku heimildarfje með jöfnuði og rjettsýni. Um 9. lið, sem er aukafjárveiting til Breiðafjarðarbátsins, skal jeg geta þess, að þareð töluverður vöruskortur var orðinn við Breiðafjörð, sá stjórn h. f. Breiðafjarðarbátsins sjer ekki annað fært en semja við „Svan“ að byrja ferðir í miðjum janúar. enda þótt honum bæri engin skylda á ferðum fyr en í byrjun apríl, og gerði það í von um aukastyrk, sem og hjer er farið fram á.

Þá kem jeg að 10. lið, sem er 12 þús. kr. styrkveiting til mótorbátaferða frá Reykjaík til kauptúnanna í Árnessýslu. Þm. Árnesinga fóru fram á 12 þús. kr. styrk hjá nefndinni. en hún sá sjer ekki fært að veita hann, en það var borið fram í Nd. af þeim og samþ. þar. Fjvn. Ed. hækkaði styrkinn niður í 5 þús. kr., og mun samgmn. ekki leggjast á móti því. Samgmn. er ekki á móti styrk, er gangi til Rangárvallabáts, því að kunnugt er, að sýslan liggur þannig, að ferðir til hennar á sjó eru mjög svo erfiðar.

Þá hefir nefndin veitt 1 þús. kr. styrk til bátaferða á Hvalfirði. Undanfarin ár hefir styrkur einnig verið veittur til þessa. og nefndin áleit, að þetta mætti ekki vera minna.

Þá er 8 þús. kr. styrkveiting til mótorbátaferða frá Hornafirði og norður á bóginn. Fjörðurinn stendur mjög illa að vígi, þareð hann getur ekki notið ferða Sterlings, og hefir ekki aðrar samgöngur á sjó en 3–4 ferðir frá Reykjavík. Það er nauðsynlegt fyrir hann að hafa samgöngur við Austfirði, sjerstaklega á síðari árum, síðan Austfirðingar byrjuðu að stunda sjó frá Hornafirði á vetrarvertíð, og það í allstórum stíl. Nefndin leit svo á, að bæta bæri úr þessu, með því að láta þá fá þennan styrk, og jafnframt láta þá eða sýslunefnd þeirra, þá ráða, hvernig honum yrði haganlegast varið.

Þá er 60 þús. kr. styrkur til Eimskipafjelags Íslands. Fyrir Norður- og Austurlandi hafa verið 2 bátar til strandferða. Þeir hafa notið allmikils styrks úr ríkissjóði, en hafa verið litlir og ófullkomnir og algerlega ónógir og lítt hæfir til fólksflutninga. Nefndin leit svo á, að haganlegast mundi vera að hafa gott skip til þessara ferða. Og þess vegna varð það að samningi við Eimskipafjelagið, að Goðafoss færi 4 ferðir til og 3 ferðir frá landinu til útlanda, með viðkomu á helstu höfnum á Norður- og Austurlandi. Þetta mun að engu dýrara en bátaferðir á þessu svæði undanfarin ár, en mikið haganlegra.

Jeg get ekki stilt mig um að taka það fram, að samgöngur á sjó á síðasta ári og á þessu ári sjeu allof dýru verði keyptar. Það er áætlað, að hallinn á Sterling þetta ár muni verða 3–400 þús. kr. 125 þús. kr. eru veittar til Suðurlands og 100 þús. kr. til bátaferða á flóum og fjörðum. Það má því gera ráð fyrir, að um eða yfir 600 þús. kr. muni varið til strandferða þetta ár, og er það meira en nokkru sinni fyr, fyrir svo ófullkomnar ferðir. Því er ekki hægt að nema, að stjórnin gerði mjög óhaganlegan samning við Suðurlandsfjelagið, að það skyldi fá 125 þús. kr. til 9 ferða til Vestfjarða og 4 ferða til Hornafjarðar. Slíkt nær varla nokkurri átt. Þetta er því óafsakanlegra fyrir stjórnina, þar sem þing átti að koma saman áður en ferðir þessar byrjuðu. Stjórninni var skylt að fresta að gera samning um þetta, þar til þing væri komið saman. Að svo búnu sje jeg ekki ástæðu til að fara meira út í þetta mál að sinni.