26.04.1921
Efri deild: 52. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 739 í B-deild Alþingistíðinda. (827)

30. mál, fjáraukalög 1920 og 1921

Guðmundur Ólafsson:

Það er sjerstaklega viðvíkjandi bryggjunni á Blönduósi, að jeg stend upp, og jeg skal geta þess, að jeg er einkar þakklátur háttv. frsm. (S. H. K.) fyrir hlýleg ummæli hans um þennan styrk, en jeg hygg þó, að aths. háttv. nefndar, um skilyrðið fyrir fjárv. þessari, sje ekki jafn vingjarnleg, og ætti að falla burt. Aths. nefndarinnar er svo hljóðandi:

„…að því tilskildu, að viðgerð þessi fari fram, áður en lagt er út í byggingu nýrrar bryggju á Blönduósi“.

Jeg veit, að háttv. deildarmönnum er það kunnugt, að alt síðan 1914 hefir verið veitt fje til byggingar bryggju sunnan megin Blöndu. Fjárveiting þessi hefir verið endurtekin hvað eftir annað, og hækkuð nokkuð síðari árin, með tilliti til aukinnar dýrtíðar.

En þrátt fyrir það hefir ekki þótt fært að leggja út í bryggjugerðina, því að fjárveitingin hefir verið svo lítil. Eitthvað hlýtur að græðast á því, að ekki hefir verið hrapað að þessu verki nú, og jeg skil ekki, að fjárveitingarvaldið geti nú kipt að sjer hendinni með fjárveitingu til bryggju þessarar, þótt ekki hafi verið hrapað að framkvæmdum málsins. Nú er, eins og kunnugt er, bryggja á Blönduósi, norðan megin árinnar. Þessi bryggja var fyrst bygð fyrir liðugum 30 árum, en hefir síðan verið lengd og endurbætt nokkuð. Þessi bryggja skemdist allmikið, brotnaði töluvert framan af henni 1918, og svo aftur í brimi í nóvember í haust, og þá svo mjög, að megnið af eldri hluta bryggjunnar eyðilagðist. Bryggjan er því nú í tveim hlutum, þannig, að eftir stendur fremri hluti hennar og talsverður stöpull fast við land, en úr henni brotinn alt að 20 metra langur kafli. Verði ekki gert við bryggjuna í sumar, sópast hún að sjálfsögðu öll í burtu í brimunum í haust, og það fje, sem í henni stendur, tapast. Það er þegar byrjað á viðgerð á þessari bryggju, búið að hreinsa grjót úr bryggjustæðinu og fylla upp búkka. Hins vegar er og nú hafinn undirbúningur um að byggja bryggju þá sunnan megin árinnar, sem áður hefir verið veitt til, og kaupmenn og aðrir hafa þegar lofað fjárframlagi til hennar, og gæti þá svo farið, ef þingið kipti að sjer hendinni með fjárframlög til hennar nú, að eitthvað, meira eða minna, tapaðist af þeim framlögum, enda skil jeg ekki í því, að þingið geti, meti það sóma sinn nokkurs, tekið þá fjárveitingu aftur, sem stendur í núgildandi fjárlögum til þessarar bryggjubyggingar að sunnanverðu við ána. Kaupfjelagið stendur best að vígi með að nota bryggju þá, sem nú er, af því að það hefir bækistöð sína norðan árinnar, en þó verða allir kaupmenn á Blönduósi að skipa upp vörum sínum við hana, ef nokkuð verulegt er að veðri. Bryggjan er því lífsnauðsyn fyrir sýsluna. Skírskota jeg að öðru leyti til þeirra háttv. þm. Seyðf. (Jóh. Jóh.) og háttv. frsm. (S. H. K.), sem báðir eru kunnugir á Blönduósi, þótt frá fornu fari sje.

Þá vil jeg fara nokkrum orðum um sumar aðrar brtt. háttv. nefndar. Jeg er nú einn af þeim fáu, sem álít, að rjett sje að spara það, sem unt er, en sú viðleitni nefndarinnar hefir þegar mætt nokkurri mótspyrnu. Hæstv. forsrh. (J. M.) mælti gegn nokkrum liðum, sem nefndin vill fella niður, og sömuleiðis háttv. 2. þm. Rang. (G. Guðf.). En mjer finst það æðivarhugavert nýmæli, að í þessum fjáraukalögum er snarað álitlegri fúlgu, eða 22.500 kr., í 3 embættismenn, til þess að leita sjer lækninga. Jeg held, að hjer sje gengið inn á hættulega braut, skapað varhugavert fordæmi, sem getur bundið ríkissjóði þungan bagga á herðar í framtíðinni, og mjer þykir einkennilegt, ef hv. fjvn. telur ríkissjóð færan um að standa straum af slíku í framtíðinni. Vjer höfum stóran hóp af embættismönnum og starfsmönnum, og ýmsir þeirra munu þurfa að leita sjer heilsubótar, en eru fátækir, og þá mun þykja sjálfsagt, að ríkissjóður styrki þá að miklu leyti eða öllu, ef þessir menn fá umbeðinn styrk. Það er með þessum fjárveitingum sköpuð nokkurs konar regla, sem þingið getur varla brotið í framtíðinni, er um lík tilfelli er að ræða.

Jeg fylgdist ekki nógu vel með ræðu háttv. frsm. (S. H. K.), er hann var að mæla með styrk til Kristínar Grímsdóttur, sem ætlast er til að fái helming styrks þess, sem syni hennar, Jóhannesi Helgasyni, var ætlaður í síðustu fjárlögum. — Þótt styrkur þessi sje eigi hár, þar sem einungis er um helming hans að ræða, eða 1000 kr., þá vildi jeg fá nánari upplýsingar um þetta. (H. St.: Það eru sjerstakar ástæður). Getur verið, en jeg efast um, að þessi kona sje fátækari en svo margar aðrar konur í þessu landi, sem mist hafa syni sína, eftir að þær hafa verið búnar að kosta þá til náms. Mjer hefir aldrei komið til hugar, að nokkru sinni væri hægt að erfa fjárhæðir, sem staðið hafa í fjárlögunum. Jeg vildi aðeins benda á þetta nýmóðins framfaraspor nefndarinnar, sem jeg álít ekki heppilegt.