26.04.1921
Efri deild: 52. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 745 í B-deild Alþingistíðinda. (829)

30. mál, fjáraukalög 1920 og 1921

Guðjón Guðlaugsson:

Jeg ætla að minnast á einstaka liði, sem mjer virðast athugaverðir að einhverju leyti. Jeg geri það ekki að neinu kappsmáli, enda eru þetta ekki stórmál, sem um er að ræða. Jeg hefði getað sýnt afstöðu mína með atkv. mínu, en jeg kann betur við að skýra hana með nokkrum orðum.

Fyrst verður þá fyrir mjer utanfararstyrkur til læknanna Gunnl. Claessens og Jóns Kristjánssonar. Eins og tekið hefir verið fram af háttv. 2. þm. Rang. (G. Guðf.), er styrkurinn til Claessens læknis ekki til sjálfs hans í raun og veru, heldur fyrir alt landið. Það er ómögulegt að líta öðruvísi á það mál. Jeg get því ekki talið það heppilegt að klípa úr þeirri fjárveitingu, því hún er í raun rjettri til heilbrigðismála, og er ekki of miklu fje varið í því skyni. Maðurinn, sem hlut á að máli, er eini sjerfræðingur hjer á landi í þeirri grein, sem um ræðir, og er það maður, sem allir treysta. Styrkurinn er ekki meiri en aðeins ferðakostnaður, og er þá smásmugulegt að klípa úr honum.

Það má segja, að styrkur til Jóns Kristjánssonar sje ekki fyrir landið í heild sinni, en þó er hann aðallæknir hjer á landi í sinni grein, sem mun vera nauðsynleg innan læknisfræðinnar. Það stendur svo sjerstaklega á fyrir honum, að þau áhöld, sem hann hefir notað til þessa, verða honum ónýt þegar rafveita kemur hjer í Reykjavík. Ef svo er litið á, að lækningar hans sjeu nauðsynlegar, og fáir munu vera á annari skoðun, þá verður ekki hjá því komist að styrkja hann til þess að halda áfram. Þingið verður að hlaupa undir bagga með honum til áhaldakaupa, því hann hefir orðið fyrir óverðskulduðu tjóni. Ef áhöldin hefðu orðið gagnslaus á annan hátt, t. d. við eldsvoða, þá hefði hann fengið þau endurgreidd, en það er ekki hægt að tryggja muni gegn framförum, en hins vegar er ekki rjett að láta menn gjalda þeirra eins tilfinnanlega og verður um þennan lækni, ef enginn eða lítill styrkur er veittur.

Jeg verð líka að líta svo á, að Alþingi ætti að kosta 1 eða 2 lækna til utanferða á ári hverju. Engum er jafnnauðsynlegt að fylgjast með tímanum og kynnast þeim nýjungum, sem efst eru á baugi. Það er hætt við, að læknarnir dagi uppi að öðrum kosti, og komi ekki eins að notum sem ella.

Háttv. nefnd hefir viljað búta þennan ferðastyrk í sundur þannig, að 3. maðurinn gæti farið að auki, og auk þess sparist 200 kr. fyrir landssjóð. Þó að 200 kr. sjeu að vísu peningar, þá er það svo lítilfjörleg upphæð, að hún gerir hvorki af nje á í þessu efni. En þegar klipið verður af þessum ferðastyrk verður hann svo lágur, að varla er sæmandi að veita hann, ef veitt er á annað borð. Það væri, ef til vill, heldur ástæða til að hækka styrkinn, en þó að það sje ekki gert, þá vona jeg, að menn láti sjer nægja, að hann standi í stað. Jeg verð því að greiða atkv. með þessum liðum, eins og þeir komu frá hv. Nd., en á móti nýja liðnum til Magnúsar Einarssonar dýralæknis, því að mjer hefir ekki verið sýnt fram á, að brýn nauðsyn sje til þess, að sá maður sigli, og jeg veit ekki, hvort hann æskir þess.

Þá vil jeg geta þess, að jeg mun greiða atkv. gegn brtt. um Holtaveginn. Jeg er að vísu ekki kunnugur aðstæðum þar eystra, en eftir að hafa hlýtt á ræðu háttv. 2. þm. Rang. (G. Guðf.) sje jeg, að þessarar fjárveitingar muni vera full þörf, og auk þess veit jeg, að vegamálastjóri er veitingunni samþykkur. Mjer þætti líka leiðinlegt, ef allar fjárveitingar til verklegra framkvæmda væru feldar á þessu þingi.

Háttv. frsm. nefndarinnar (S. H. K.) fann að því, að endurbyggja ætti Arnarnesvita. en láta óbygða nýja vita, sem þó hefði verið búið að ákveða að reisa skyldi. Jeg get ekki verið á sama máli. Jeg verð að líta svo á, að við verðum að hafa það endurbætt, sem til er, en ekki leggja út í það að hrófla upp nýju og láta það gamla ónýtast fyrir vanhirðu sakir. Arnarnesvitinn er nú orðinn svo, að húsið getur hrunið þá og þegar, og vitinn þá eyðilagst með öllu. Það þarf því bráðra aðgerða við. Þessi viti er eini vitinn við Ísafjarðardjúp, en það er einhver fjölfarnasta siglingaleið hjer við land. Vitinn er því bráðnauðsynlegur, og það þess fremur, sem sjóleið þessum slóðum er stórhættuleg, aðeins örmjótt sund milli skerja. Ef húsið hryndi og eyðilegði vitann, þyrfti að byggja alt upp af nýju, og yrði það mun kostnaðarmeira en ef gert væri við í tæka tíð.

En um leið og gert er við Arnarnesvitann, væri vel til fallið að byggja vita að Gjögri við Húnaflóa, því að þessir vitar yrðu til þess að gera siglinguna vestan lands hættuminni. Jeg held, að hentast væri að reyna að gera helstu siglingaleiðir eins hættulitlar sem unt er, og vinna að því frekar en að setja upp vita hingað og þangað, sem verða til lítils gagns vegna þess hve fáir þeir eru og langt hver frá öðrum. Það þyrfti því helst að gera við vitann í Elliðaey um leið, sem sparaði það að byggja nýjan vita á Höskuldsey. Mönnum þykir þetta ef til vill djarft talað nú í peningavandræðunum, en jeg tel meiri sparnað í því að gera frekar fátt, en vel, heldur en margt og af handahófi, og kosta aldrei til þess svo miklu, að það komi að verulegum notum.

Þá er brtt. við 5. gr., undir staflið d., um launabætur til tveggja kennara við Stýrimannaskólann og Vjelstjóraskólann. Jeg er í mjög miklum efa, hvort rjett sje að færa launabætur þessar niður, enda tel jeg vafasamt, að nefndin byggi þar á nægilegum rökum. Jeg hefi talsverða þekking af mönnum þessum; veit að þeir eru góðir og áhugasamir kennarar, en laun þeirra lág í samanburði við kennara við aðra skóla. Þess vegna mun jeg greiða atkv. á móti þessari brtt., og vildi leggja til, að liður þessi fengi að halda sjer eins og hv. Nd. samþ. hann.

Þá kemur Flensborgarskólinn. Háttv. 2 þm. G.-K. (B. K.) og hæstv. forsrh. (J. M.) hafa báðir talað fyrir skólanum, og hefi jeg litlu þar við að bæta, en vil þó geta þess, að jeg hefi átt nemanda í skólanum, og þekki skólann ekki að öðru en góðu einu. Þess vegna tel jeg rjettara að brtt. nefndarinnar við 19. lið 5. gr. og sem merktur er undir staflið e, sje feld. Jeg er því sömu skoðunar og hv. 2. þm. G.-K. (B. K.), að það hljóti að teljast axarskaft, að Hafnarfjörður fari nú að leggja skólanum fje. Það hefði þá þurft að vera samningur um það áður, að Hafnarfjörður gerði það. Því ekki er hægt að skipa honum það nú, svona upp úr þurru, og miða svo fjárstyrk Alþingis til skólans við það. Þetta er sama og að neita að styrkja nemendur skólans, en þeir eru víðsvegar af landinu; því má skólinn fremur skoðast sem landsskóli heldur en prívatstofnun fyrir Hafnarfjörð; svo margir hafa sótt þangað til náms, og það víðsvegar úr öllum landsfjórðungum.

Og það sem hæstv. forsrh. (J. M.) upplýsti um, að skólinn væri svo góður, að hann stæði ekkert að baki Gagnfræðaskólanum á Akureyri í sumum greinum, þá er það í alla staði rjett, enda veit jeg til þess sjálfur, að undanfarin ár hafa nokkrir nemendur farið úr skólanum og inn í Mentaskólann, eins og nemendur Akureyrarskólans. Það má ef til vill segja, að það sjeu aðeins dugnaðarmenn, sem þetta gera. og megi því þakka piltunum það sjálfum. En þetta hefir tekist og farið vel á því, enda ber á það að líta, að flestir, sem fara á Gagnfræðaskólann á Akureyri vita, að þeir geta úr skólanum komist inn í 4. bekk Mentaskólans, og stefnir því metnaður ungra manna að því, að takmark það svíki ekki. En um þetta hefir ekki eins verið hugsað í Flensborgarskólanum, af því það hefir minna tíðkast að fara beint úr skólanum og í Mentaskólann, en hefði eflaust verið hægt að gera það miklu oftar með aðeins lítilli viðbótarkunnáttu.

Þá koma brtt. nefndarinnar við 6. gr. Er þá fyrst að telja a.-lið (styrkinn til alþýðubókasafnsins), að jeg greiði hiklaust atkvæði með nefndinni um, að sá styrkur falli niður. Og sama máli er að gegna um 12., 13. og 14. lið, að þar greiði jeg líka atkvæði með nefndinni, að styrkir þessir falli burt.

11. liður (Ásmundur Sveinsson) er víst sami maðurinn, sem síðar er skotið inn með 1000 kr. styrk. Jeg mun greiða atkv. með því, að liðurinn falli burt, og mun því, í samræmi við það, greiða atkvæði móti því að taka hann upp aftur.

Jeg er líka samþykkur nefndinni um, að styrkurinn til útgáfu lögfræðilegs tímarits falli niður, enda þótt jeg hins vegar telji slíkt tímarit ekki með öllu ónauðsynlegt; en hitt þykist jeg vita, að það verði aðeins örfáir menn, er notfæra sjer slíkt fyrst um sinn, og því gerlegt að fresta framkvæmdum þess að þessu sinni.

Þá er við 7. gr. brtt., undir staflið b. Það er Blönduóssbryggjan; en þessari fjárveiting fylgir skilyrði, sem jeg kann ekki alls kostar við. Því er bætt aftan við, „að því tilskildu, að viðgerð þessi fari fram, áður en lagt er út í byggingu nýrrar bryggju á Blönduósi“. Það var nú upplýst í dag hjer í deildinni af háttv. 1. þm. Húnv. (G. Ó.), að þegar er byrjað á þessari nýju bryggju, og veitt sjerstaklega til hennar í fjárlögum. Get jeg því ekki sjeð, í hvaða sambandi þessar bryggjur eru. Hjer er verið að tala um að bæta skemda bryggju, og það verður víst að teljast bráðnauðsynlegt. Jeg þykist sjá þetta glögt, því að jeg er vel kunnugur á Blönduósi, og að verði ekki þegar gert við bryggjuna nú í vor, þá hlýtur miklu fje að verða spilt. Það getur, vægast sagt, talist ofureinfeldnislegt að setja bryggjur þessar í nokkurt samband. Það væri eins og ef veitt væri fje til bryggjugerðar í Viðey, en svo yrði það skilyrði sett, að fjárupphæðina mætti ekki leggja í samskonar fyrirtæki hjer í Reykjavík. Það er alllangur vegur frá aðalverslunarstað Blönduóss og út að þessari bryggju, og því neyðarúrræði að þurfa að nota hana. Þess vegna hlýt jeg að verða á móti þessari athugasemd, eða þessu skilyrði, sem sett er aftan við liðinn.

Þá kem jeg nú að þeim liðum í brtt. nefndarinnar, sem knúði mig aðallega til þess að standa upp og kveðja mjer hljóðs, en það eru styrkirnir, sem nefndin leggur til að veita nokkrum mönnum til þess að leita af landi burt sjer til heilsubótar.

Mjer þótti vænt um þegar jeg varð þess vís, að nefndin hafði strikað menn þessa út, en sú gleði stóð ekki lengi, því síðast í brtt. sínum kemur nefndin með þessa sömu menn, og leggur þar til, að þeim sje veittur hinn sami styrkur og hv. Nd. hafði samþ., og ekki nóg með það, heldur hefir nefndin bætt þriðja manninum við. Fyndist mjer þá ekki ósennilegt að 4. og 5. maðurinn bættist við áður frv. þetta er orðið að lögum. Og sje stefna þessi upptekin, þyrftu ekki að líða nema 2 þing þangað til fyltur væri tugur embættismanna þeirra, sem ríkið styrkti til þess að sigla til kóngsins Kaupinhafnar, og kallað væri, að þangað færu til þess að leita sjer lækninga. Jeg hefi nú aldrei verið álitinn óvinveittur embættismönnum, heldur fengið orð fyrir hið gagnstæða. En svo mikil embættismannasleikja er jeg þó ekki, að jeg vilji spólera atkvæði mínu í það að senda embættismenn til útlanda, sem vanta heilsu. Jeg er meðmæltur öllu því, sem miðar að því að efla hreysti og heilsu þjóðarinnar.

T. d. vil jeg að berklaveikisfrv. nái fram að ganga sem allra fyrst, og jeg vil hlynna að okkar íslenska læknastofni, en að Alþingi gangi svo langt að styrkja hvern mann til utanfarar, sem dettur í hug að fara fram á að fá styrk í því efni að afla sjer heilsu, það er fjarstæða, enda sú glæfragata, sem víta verður, að gengið sje inn á. Að við eigum að fresta viðgerðum á gömlum byggingum eða láta nauðsynleg framfaraverk liggja niðri, en senda embættismenn á ríkiskostnað út úr landinu sjer til heilsubótar, það væri næsta einkennileg úrlausn á þessum fjárhagsvandræðatímum.

Leikmenn yfirleitt hafa þó sjálfsagt eins mikinn tilverurjett, en þó hafa þeir ekki komið fram með kröfur sínar enn, en þeir koma þá sjálfsagt á eftir, því „hvað höfðingjarnir hafast að, hinir ætla sjer leyfist það“.

Það er ekki þar fyrir, að mannúðin ekki mikil orðin og menn yfirleitt hjálpsamir bæði við hærri sem lægri, en jeg held að þetta sje svo hál braut, og ískyggilegasta gönuhlaupið, sem þingið nokkru sinni hefir farið í fjármálum, enda er þetta í ósamræmi við sparnaðaranda nefndarinnar, að fella styrkinn fyrst niður, en taka svo upp á öðrum stað og bæta þá einum við. Þess vegna mun jeg greiða atkv. með því, að liðurinn falli niður, eins og jeg líka hlýt að greiða atkv. á móti því, að taka menn þessa upp aftur.